Saga sem ekki má glatast eða gleymast
Valmundur: Ingibergur hefur sýnt ótrúlega þolinmæði og þrautseigju, segja mér þeir sem til þekkja.

Ingibergur Óskarsson heiðraður af Sjómannadagsráði:

„Ingibergur hefur unnið óeigingjarnt og mikið starf við skráningu þeirra sem fóru siglandi gosnóttina fyrir 52 árum til þorlákshafnar. Hvaða bátar og skip komu við sögu. Áhafnir bátanna, myndir og sögur þeirra sem um er fjallað. Öll heimildavinnan.

Það er ótrúlega gaman og gefandi að skoða þetta allt saman. Fyrir mann eins og mig sem upplifði þessa tíma annarsstaðar á landinu, er ómetanlegt að sjá þessa framsetningu á sögum þeirra sem fóru nóttina örlagaríku 1973,“ sagði Valmundur Valmundsson þegar hann afhenti Ingibergi heiðursskjöld Sjómannadagsráðs Vestmannaeyja sem á stendur;  Vestmannaeyjum 23. janúar 2025 ,,Kæri Ingibergur Óskarsson, Sjómannadagsráð Vestmannaeyja þakkar þér fyrir ómetanlegt framlag þitt til verkefnisins 1973- allir í bátana. Lifðu heill.

Amman átti fjórar dætur í Eyjum

„Hvað mig persónulega varðar man ég þessa nótt eins og gerst hafi í gær. Þann 23. janúar 1973 var ég 11 ára gamall. Bjó hjá ömmu og afa á Siglufirði. Um fimm leytið um morguninn vakna ég við að amma gamla er komin á stjá í eldhúsinu. Farin að skerpa á könnunni og nota bene búin að kveikja á viðtækinu. Í þessa tíð var ekki útvarpað á nóttunni. Þetta þótti mér skrýtið og fer fram í eldhús til ömmu og heyri þá að byrjað sé að gjósa í Heimaey. Amma og afi áttu fjórar dætur þá í Eyjum. Þær voru Stína hans Gaua á Hvoli, Bidda hans Baldurs í Gúanó. Ásta hans Svenna vörubílstjóra og Eygló hans Bedda smiðs,“ sagði Valmundur. Hafði ömmu hans dreymt illa um nóttina en eftir hádegi fengu þau fréttir af fjölskyldunum sem allar björguðust upp á land.

Dugnaður og elja

Næst beindi Valmundur orðum sínum að manni dagsins, Ingibergi Einarssyni.  „ Kærar þakkir Ingibergur fyrir þína faglegu og mikilvægu vinnu við skráningu allra þessara upplýsinga og öflun efnis á síðuna 1973, allir í bátana. Það er ekki sjálfgefið að einstaklingur taki að sér alla þessa vinnu sem þetta er orðið. Ingibergur hefur sýnt ótrúlega þolinmæði og þrautseigju, segja mér þeir sem til þekkja. Eftir að hafa skoðað hvað liggur að baki tek ég heilshugar undir með þeim. Ótrúlegt að þetta sé komið í þennan farveg sem það er. Þeim er svo sem ekki fisjað saman afkomendum Óskars Matt og Þóru. Hvar sem þau og þeirra afkomendur koma við sögu sér maður þann mikla dugnað og elju sem einkennir þau og þeirra ættboga.

Það er mér heiður fyrir hönd Sjómannadagsráðs Vestmannaeyja að afhenda þér þessa viðurkenningu sem þakklætisvott sjómanna í Vestmannaeyjum fyrir þitt óeigingjarna og vel svo frambærilega brautryðjandastarf til að þessi hluti af sögunni um brottflutning heils bæjarfélags á einni nóttu glatist ekki heldur geymist og verði til fyrir komandi kynslóðir þeim til fróðleiks og upprifjunar. Þessi saga má alls ekki glatast né gleymast.

Á skildinum stendur; Vestmannaeyjum 23. janúar 2025 ,,Kæri Ingibergur Óskarsson, Sjómannadagsráð Vestmannaeyja þakkar þér fyrir ómetanlegt framlag þitt til verkefnisins 1973- allir í bátana. Lifðu heill.

Nýjustu fréttir

Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona
Rannveig Ís­fjörð sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Systurskipin landa fullfermi
Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram
Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.