Ágætu lesendur. Það er greinilegt að það eru ekki allir á eitt sáttir með þær samgöngur sem við búum við í augnablikinu, það er ekkert útséð að það sé neitt að breytast (lagast). Akkúrat svona eru kjör aðstæður fyrir það fólk sem fer með ferðina í þessum málum, fólkið sem stjórnar og ræður örlögum okkar sem þurfum að nota þessar samgöngur. Þetta fólk er ekki að fatta að Herjólfur er fyrir fólkið sem þarf að fá sendar vörur og fara erinda sinna til og frá Vestmannaeyjum. Samgöngur eru ekki eitthvað sem er hægt að vera að þvælast með í einhverjum riddaraslag eins og þetta virðist vera komið í á þessu stigi (á milli Siglingastofnunar, Vegagerðarinnar og Eimskips).