Samgönguvandræði Eyjamanna halda áfram og nýjasti kaflinn er yfirvinnubann áhafnarinnar á Herjólfi. Fjölmargir Eyjamenn hafa tjáð sig um þetta, sem er í sjálfu sér bara hið besta mál, en áður en ég var tilbúinn að tjá mig um þetta, þá kannaði ég lauslega launakjör áhafnarinnar og það verður bara að viðurkennast alveg eins og er, að fólk sem er á sjó meira og minna í öllum veðrum, stóran hluta af árinu á þessu erfiða hafsvæði við suðurströnd landsins, þá er þetta fólk hreinlega á skíta kaupi og ég styð þau heilshugar í baráttu sinni.
Vissulega er þetta mjög erfitt fyrir alla Eyjamenn, bæði fyrirtæki og fólk sem þarf að komast á milli daglega, og þá kannski sérstaklega með vörur. En að mínu mati er boltinn fyrst og fremst hjá þeirra viðsemjendum að koma fram með tilboð svo hægt sé að fara að finna út sanngjarna niðurstöðu. Í raun og veru er svolíðið skrýtið að heyra og sjá fólk sem virkilega er á þeirri skoðun að það eigi að setja lög á þetta verkfall. Að mínu mati þá verða aðilar einfaldlega að fá að semja um sín mál, lög á verkföll hafa aldrei alið af sér annað en enn meiri óánægju og eru svo sannarlega ekki lausnin á þessu máli.
�?að er þó eitt við þennan vandræðagang í samgöngumálum okkar sem býður upp á ákveðið tækifæri. Eins og komið hefur fram áður, þá hefur innanríkisráðherra boðað að boðin verði út smíði á nýrri ferju á næstunni, sem á að vera töluvert minni en núverandi ferja, með minni yfirbyggingu, taka aðeins færri bíla og ganga töluvert hægar en núverandi ferja. Á sama tíma virðist ekkert vera í undirbúningi varðandi lagfæringar á Landeyjahöfn. Eins og ég hef sagt svo oft áður, það er lágmarks krafa að gerður verði varnargarður til þess að verja innsiglingu Landeyjahafnar fyrir brotsjó. Gangi þessar ætlanir innanríkisráðherra eftir og hingað komi ný ferja eftir svona ca. 2 ár og núverandi ferja verði þá hugsanlega seld í burtu á sama tíma, þá er ekkert ólíklegt annað en að allt of fáar ferðir þessar vikurnar verði það sem við munum hugsanlega þurfa að búa við, þ.e.a.s. miðað við að ný ferja geti ekki siglt til �?orlákshafnar í jafn slæmu veðri og núverandi ferja, og ekkert verði gert til þess að lagfæra Laneyjahöfn. Ekki góð spá þetta, en hingað til hafa allir spádómar mínir um Landeyjahöfn reynst réttir og ég tek undir það sem sumir hafa skrifað að undanförnu og ég áður, stærsta vandamál okkar Eyjamanna er að forræðið á bæði höfn og ferju er í höndum fólks sem aldrei þarf að treysta á þessar samgöngur.
�?að er orðið ansi langt bil á milli raunveruleikans í dag og þeirra draumóra sem bæjarstjórinn okkar var með á sínum tíma um allt að 8 ferðir á dag. En vonandi verður búið að skipta honum út í vor, enda hefur aðkoma hans að þessum samgönguvandamálum okkar á þessu kjörtímabili nú þegar skaðað hagsmuni okkar Eyjamanna allt of mikið.
�?að jákvæðasta í samgöngumálum okkar eru ferðir Víkings sem svo sannarlega munu nýtast okkur vel í sumar og vonandi fá þeir Rib safari menn líka að sigla í Landeyjahöfn í sumar, en að sjálfsögðu fer þetta allt saman fyrst og fremst eftir tíðarfarinu. Miðað við alla þá fjárfestingu sem bæði á og er að eiga sér stað í matsölu-, kaffi- og gistiaðstöðu, þá einfaldlega verður þetta allt saman að ganga upp. Tækifærin eru svo sannarlega til staðar, en að mínu mati vantar fyrst og fremst skýr skilaboð frá okkur Eyjamönnum um það hvað VIÐ viljum að sett sé í forgang.