Samningi Filip Stuperavic rift við ÍBV
Filip Stuparevic. Mynd/ ÍBV Knattspyrna

ÍBV og serbneski framherjinn Filip Stuperavic hafa náð samkomulagi um riftun á samningi hans við félagið. Magnús Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net. Filip hafði ekki verið í leikmannahópi ÍBV í seinustu tveimur leikjum í Bestu deild karla og nú er ljóst að hann er á förum frá félaginu.

Filip er 25 ára framherji og hefur spilað víða í Evrópu. Hann hafði ekki spilað í rúmt ár vegna meiðsla áður en hann kom til liðs við ÍBV í vetur. Hann lék sex leik fyrir ÍBV á tímabilinu, fimm í deild og einn í bikar.

Næsti leikur ÍBV er gegn Þór á Akureyri, sunnudaginn 14. júní kl. 17:00.

 

Nýjustu fréttir

Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.