Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa undirritað samstarfssamning um stofnun áfangastaðastofu á starfssvæði samtakanna.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru þar með önnur landshlutasamtökin til að taka ákvörðun um stofnun áfangastaðastofu á starfssvæði sínu. Undirbúningur að stofnun áfangastaðastofa í öllum landshlutum hefur staðið yfir sl. tvö ár á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála og Ferðamálastofu sem hafa í sameiningu leitt vinnuna við undirbúning og framkvæmd.
„Ég er mjög ánægð með að við skulum komin með samning um stóra og öfluga áfangastaðastofu á Suðurlandi en þar fer um verulega stór hluti ferðamanna sem hingað koma. Áfangastaðastofan mun starfa á grunni áfangastaðaáætlunar fyrir svæðið og ég er þess fullviss að hún muni stuðla að enn heildstæðari uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu,“ segir Þórdís Kolbrún.
„Stofnun áfangastaðastofu í nánu samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands mun auka á samstarf ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila. Stofan mun styrkja undirstöður ferðaþjónustu sem er ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs. Vægi greinarinnar á Suðurlandi er mikið og hún hefur mikill áhrif á byggðaþróun. Með stofnun áfangastaðastofu er verið að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar á Suðurlandi, á forsendum heimamanna, enn frekar og gera þar með sunnlenskt samfélag betur búið undir að taka við innlendum sem erlendum ferðamönnum þegar kófinu lýkur. Ég er þess fullviss að þetta á eftir að verða samfélaginu á Suðurlandi til heilla,” segir Ásgerður K. Gylfadóttir formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Áfangastaðastofur
Áfangastaðastofa er svæðisbundin þjónustueining á vegum opinberra aðila og einkaaðila sem hefur það meginhlutverk að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta og tryggja að hún þróist í takt við vilja heimamanna þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi.
Markmiðið með stofnun áfangastaðastofa er að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi hennar á viðkomandi landsvæði. Áfangastaðastofa starfar í umboði sveitarfélaga viðkomandi landsvæðis og er samstarfsvettvangur viðkomandi sveitarfélaga, ríkis og ferðaþjónustunnar.
Eitt meginverkefni áfangastaðastofu er að leggja fram áfangastaðaáætlun fyrir svæðið og tryggja að hún sé í samræmi við aðra lögbundna áætlanagerð og aðal- og deiliskipulag. Auk þess mun áfangastaðastofan m.a. hafa aðkomu að þarfagreiningu rannsókna og mælinga á landsvísu, stuðla að vöruþróun og nýsköpun, leggja mat á fræðsluþörf og sinna svæðisbundinni markaðssetningu. Áfangastaðastofa getur verið stofnuð á grundvelli núverandi markaðsstofa eða annarra starfseininga sem til staðar eru á viðkomandi landsvæði.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.