Samstarf um áfangastaðastofu á Suðurlandi: Stuðlar að heildstæðari uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS, undirrituðu samninginn.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa undirritað samstarfssamning um stofnun áfangastaðastofu á starfssvæði samtakanna.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru þar með önnur landshlutasamtökin til að taka ákvörðun um stofnun áfangastaðastofu á starfssvæði sínu. Undirbúningur að stofnun áfangastaðastofa í öllum landshlutum hefur staðið yfir sl. tvö ár á vettvangi Stjórnstöðvar ferðamála og Ferðamálastofu sem hafa í sameiningu leitt vinnuna við undirbúning og framkvæmd.

„Ég er mjög ánægð með að við skulum komin með samning um stóra og öfluga áfangastaðastofu á Suðurlandi en þar fer um verulega stór hluti ferðamanna sem hingað koma. Áfangastaðastofan mun starfa á grunni áfangastaðaáætlunar fyrir svæðið og ég er þess fullviss að hún muni stuðla að enn heildstæðari uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu,“ segir Þórdís Kolbrún. 

„Stofnun áfangastaðastofu í nánu samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands mun auka á samstarf ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila. Stofan mun styrkja undirstöður ferðaþjónustu sem er ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs. Vægi greinarinnar á Suðurlandi er mikið og hún hefur mikill áhrif á byggðaþróun. Með stofnun áfangastaðastofu er verið að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar á Suðurlandi, á forsendum heimamanna, enn frekar og gera þar með sunnlenskt samfélag betur búið undir að taka við innlendum sem erlendum ferðamönnum þegar kófinu lýkur. Ég er þess fullviss að þetta á eftir að verða samfélaginu á Suðurlandi til heilla,” segir Ásgerður K. Gylfadóttir formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Áfangastaðastofur
Áfangastaðastofa er svæðisbundin þjónustueining á vegum opinberra aðila og einkaaðila sem hefur það meginhlutverk að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta og tryggja að hún þróist í takt við vilja heimamanna þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi.

Markmiðið með stofnun áfangastaðastofa er að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi hennar á viðkomandi landsvæði. Áfangastaðastofa starfar í umboði sveitarfélaga viðkomandi landsvæðis og er samstarfsvettvangur viðkomandi sveitarfélaga, ríkis og ferðaþjónustunnar.

Eitt meginverkefni áfangastaðastofu er að leggja fram áfangastaðaáætlun fyrir svæðið og tryggja að hún sé í samræmi við aðra lögbundna áætlanagerð og aðal- og deiliskipulag. Auk þess mun áfangastaðastofan m.a. hafa aðkomu að þarfagreiningu rannsókna og mælinga á landsvísu, stuðla að vöruþróun og nýsköpun, leggja mat á fræðsluþörf og sinna svæðisbundinni markaðssetningu. Áfangastaðastofa getur verið stofnuð á grundvelli núverandi markaðsstofa eða annarra starfseininga sem til staðar eru á viðkomandi landsvæði.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn áberandi meðal styrkþega Terra
Hjörtur Leó sigurvegari eldri flokks á Þjóðhátíð
Nýtt dýpkunartímabil að hefjast í Landeyjahöfn
Íþróttamaður mánaðarins – Sigurmundur Gísli Unnarsson
Ný skólalóð Sóla formlega tekin í notkun
Engin niðurstaða um frekari fjármögnun ríkisins á NSL-4
Herjólfur siglir eina ferð fyrir hádegi
Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.