Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV í handbolta, var valin besti sóknarmaður Olís deildar kvenna á uppskeruhátíð Olís- og Grill 66 deilda HSÍ í dag. Þá hlaut hún einnig Sigríðarbikarinnar. Það var Handkastið sem greindi frá þessu.
Sandra var algjör lykilmaður í sterku liði ÍBV á nýliðnu tímabili þar sem þær léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn og enduðu í öðru sæti í deildinni.
Lovísa Thompson úr Val og Arnór Snær Óskarsson einnig úr Val voru valin leikmenn tímabilsins í Olís deildum karla og kvenna. Bæði léku þau stór hlutverk í sínum liðum en Valskonur unnu alla titla sem í boði voru og karlaliðið varð Íslands- og deildarmeistarar.
Hér að neðan má sjá alla verðlaunahafana úr Olís deildum karla og kvenna.
Olís-deild karla:
Leikmaður tímabilsins: Arnór Snær Óskarsson – Valur
Sóknamaður tímabilsins: Arnór Snær Óskarsson – Valur
Varnarmaður tímabilsins: Ingvar Dagur Gunnarsson – FH
Markmaður tímabilsins: Jón Þórarinn Þorsteinsson – FH
Efnilegastur: Ómar Darri Sigurgeirsson – FH
Þjálfari tímabilsins: Ágúst Þór Jóhannsson – Valur
Valdimarsbikarinn: Arnór Snær Óskarsson – Valur
Olís-deild kvenna:
Leikmaður tímabilsins: Lovísa Thompson – Valur
Sóknarmaður tímabilsins: Sandra Erlingsdóttir – ÍBV
Varnarmaður tímabilsins: Lovísa Thompson – Valur
Markmaður tímabilsins: Hafdís Renötudóttir – Valur
Efnilegust: Arna Karítas Eiríksdóttir – Valur
Þjálfari tímabilsins: Anton Rúnarsson – Valur
Sigríðarbikarinn: Sandra Erlingsdóttir – ÍBV