Senda undirmönnum baráttukveðjur
�??Stjórn Sjómannafélagsins Jötuns sendir undirmönnum á Herjólfi baráttukveðjur vegna yfirvinnubanns þeirra sem er liður í baráttu fyrir betri launum og félagslegum réttindum.
Stjórnin styður heilshugar undirmenn á Herjólfi og tekur undir kröfur þeirra,�?? segir í tilkynningu frá Jötni. �??Meðan yfirstjórnendur Eimskips og lykilstarfsmenn maka krókinn með launahækkunum uppá tugi prósenta, er ekki hægt að ganga að kröfum þeirra sem vinna á gólfinu, sem hafa setið eftir miðað við sambærileg störf. Einnig mótmælir stjórn Jötuns harðlega fækkun starfa undirmanna á Herjólfi undanfarin ár. �?essi fækkun hefur orðið til þess að tímasetningar um brottför standast ekki, að ekki sé talað um óhóflegt álag á þá starfsmenn sem eftir eru. Meðan ekki eru fleiri í áhöfn en raun ber vitni má deila um hvort öryggi skips, farþega og farms sé fullnægjandi.�??

Nýjustu fréttir

Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Erlingur hefur snúið gengi Minden við – þrír sigrar í röð
Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
ÍBV og Fram mætast í toppslag í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.