Sigur lífsins - páskar á Kirkjubæjarklaustri

Dagskráin hefst á skírdagskvöld með messu í Minningarkapellu sr. Jóns Steingrímssonar. Prestur sr. Ingólfur Hartvigsson.

Á föstudeginum langa, fyrir hádegi, verður dagskrá í Minningarkapellunni þar sem Björk �?orleifsdóttir sagnfræðingur flytur erindi um samfélags áhrif stórfelldra náttúruhamfara og eru Skaftáreldar þar í brennidepli. Einnig verður upplestur og Brian R. Haroldsson organisti flytur tónlist á milli atriða.

Eftir hádegi verður gengin píslarganga frá Hunkubökkum austur Klausturheiðar, að Systrastapa og þaðan í gamla kirkjugarðinn við Kapelluna á Klaustri þar sem göngu lýkur. Fararstjórar eru sr. Bernharður Guðmundsson og Jón Helgason.

Dagskrá föstudagsins langa lýkur að kvöldi með lestri úr Passíusálmum og tónlistarflutningi í Minningarkapellunni.

Eftir hádegi á laugardeginum verður gengið um söguslóðir á Kirkjubæjarklaustri. Fararstjóri Jón Helgason.

Síðdegis á laugardeginum verða tónleikar kirkjukórs Prestsbakkakirkju í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli. Undirleikari er Brian R. Haroldsson organisti.

Dagskránni lýkur með göngu á páskadagsmorgun frá Kirkjubæjarklaustri að hátíðarmessu á Prestsbakka: Fararstjóri Elín Anna Valdimarsdóttir.

Dagskráin er á vegum Kirkjubæjarstofu, í samvinnu við sóknarprest og sóknarnefnd Prestsbakkasóknar. Nánari upplýsingar í síma: 487 4645 á netfangi: kbstofa@simnet.is og vefsíðu: www.kbkl.is

Nýjustu fréttir

Undirbúa starfslok hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
Hvað ef internetið lokaði klukkan 18?
Dýpið gott í Landeyjahöfn
Fermingarfræðslan hefst á sunnudaginn
Þórarinn Björn ráðinn forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar
Handboltinn númer eitt – smíðin með í för 
Ríkið hafnar beiðni bæjarins um niðurfellingu virðisaukaskatts
Aðalfundur Farsæls haldinn 25. september
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.