Í nótt kom Sigurbjörg ÁR, nýtt skip Ísfélagsins í fyrsta sinn til löndunar í Vestmannaeyjum. Skipið var smíðað í Celiktrans-skipasmíðastöðinni í Istanbúl og kom það til landsins í ágúst.
Mesta lengd er 48,10 m og breidd 14 m. Aðalvél er MAN 1.795 kW, 800 snúningar á mínútu. Hjálparvélar eru tvær og bogskrúfa. Spilbúnaður er 4 togvindur, 3 gilsavindur, 6 grandaravindur, tvær pokavindur, átta bakstroffuspil og 2 akkerisspil ásamt hjálparvindum og dekkkrana. Vinnslubúnaður er fyrsta flokks og er sjálfvirkur búnaður sem setur afla í lest og landar, þannig að lestarvinna háseta er úr sögunni. Kælibúnaður tryggir fyrsta flokks hráefni. Siglingatæki eru frá Simberg en aflanemakerfi frá Marport. Íbúðir eru fyrir 15 manna áhöfn og öll aðstaða til fyrirmyndar, en gert er ráð fyrir tvöfaldri áhöfn. Kaupverð er ríflega 3,1 milljarður.
Sigurbjörgu er ætlað að koma í stað þriggja skipa, Jóns á Hofi ÁR, Fróða II ÁR og Ottós Þorlákssonar VE. Nánar verður fjallað um skipið í næsta tölublaði Eyjafrétta. Óskar Pétur Friðriksson var mættur á bryggjuna í nótt og smellti meðfylgjandi myndum.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst