Sjálfstæðisflokkurinn er bestur í brekku
Gísli er ánægður með heimsókn félaganna, Jóns og Brynjars.

Farið er að hitna í kolunum í stjórnmálunum nú þegar fjórir dagar eru til kosninga til Alþingis, nk. laugardag, 30. nóvember. Framboðin reyna að þétta raðir síns fólks og ná til þeirra sem enn hafa ekki ákveðið hvað skal kjósa. Hafa fulltrúar þeirra heimsótt Vestmannaeyjar þessa dagana.

Í gær mættu sjálfstæðismennirnir, Brynjar Níelsson, frambjóðandi í Reykjavík norður og  Jón Gunnarsson sem býður sig fram í Kraganum í Ásgarð og hvöttu fólk til dáða. Gísli Stefánsson, fjórði maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var ánægður með heimsóknina. „Styrkur Brynjars og Jóns er að þeir kjarna svo vel stefnu Sjálfstæðisflokksins. Það er tryggur hópur sem mætir og þeir halda manni á tánum,“ segir Gísli sem er bjartsýnn þó á brattann sé að sækja hjá flokknum.

Gísli: Það er tryggur hópur sem mætir og þeir halda manni á tánum.

 

„Menn eins og þeir félagar liggja ekki á skoðunum sínum og minna á hvað við sjálfstæðismenn stöndum fyrir. Koma inn með góðan kraft og bjartsýni í baráttuna. Það er einmitt það sem við erum að gera í okkar vinnu á lokasprettinum. Förum út, hittum fólk og eftir að hafa farið um allt kjördæmið er ég bjartsýnn. Er sannfærður um að við höldum okkar þremur þingmönnum í Suðurkjördæmi. Auðvitað kostar það mikla vinnu en með sameiginlegu átaki okkar allra tekst það. Sjálfstæðisflokkurinn er bestur í brekku,“ segir Gísli að endingu.

Nýjustu fréttir

Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.