Sjúkraflug til Eyja í svartaþoku
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í hádeginu í fyrradag beiðni frá Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum um aðstoð þyrlu vegna sjúklings sem þurfti nauðsynlega að komast upp á land í aðgerð. Vegna þoku og leiðindaveðurs var ekki unnt að senda sjúkraflugvél til Eyja.
�?yrlan TF-GNA fór í loftið klukkan 12.55. Skyggnið á Vestmannaeyjaflugvelli var svo lélegt að ákveðið var að lenda á Hamarsvegi, vestan við flugbrautina, á svonefndum Háaleitishamri. �?yrlan lenti þar klukkan 13.38. Stýrimaður og flugvirki fóru út og stöðvuðu umferð þar til starfsfólk Isavia kom á vettvang og lokaði veginum með slökkvibíl og flugbrautarbíl. Skömmu síðar kom sjúkrabíll með sjúklinginn. Eftir skoðun þyrlulæknis var sjúklingurinn var svo færður um borð í þyrluna.
TF-GNA lagði svo af stað frá Eyjum kl. 13.52 og lenti hún á Reykjavíkurflugvelli hálftíma síðar. �?ar beið sjúkrabíll sem flutti sjúklinginn á Landspítalann.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.