Stolin lundaegg fundust í Hollandi
Úr eggjunum klöktust 42 pysjur í Blijdorp-dýragarðinum í Rotterdam og eru þær nú til sýnis í garðinum. Á myndinni eru ungar stúlkur með pysjur sem síðar var sleppt.

„Rúmlega 50 lundaegg fundust í fórum þriggja þýskra smyglara á Schiphol-flugvelli í Hollandi 16. júní sl. Smyglararnir komu til Hollands frá Íslandi og voru handteknir.

Úr eggjunum klöktust 42 pysjur í Blijdorp-dýragarðinum í Rotterdam og eru þær nú til sýnis í garðinum. Hollenska ríkisútvarpið NOS greinir frá,“ segir í Morgunblaðinu í dag.

Erpur Snær Hansen, fuglafræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands, segir málið ekki hafa komið inn á borð til náttúrustofunnar og hafði ekki heyrt af málinu. Hann segir 51 egg til eða frá hafa lítil áhrif á stærð lundastofnsins, sem er flokkaður í bráðri hættu á válista Náttúrufræðistofnunar.

 

Nýjustu fréttir

Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.