Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum segir það stórtíðindi að hér verði bæði sýslumaður og lögreglustjóri í tveimur embættum. Hann sér fyrir sér mikil sóknarfæri ef af verður. �?? �?g get séð það fyrir mér að bæði sýslumaðurinn og lögreglustjórinn rói að því öllum árum og það sem mest er um vert að þeir hafi til þess frið, að fá hingað verkefni og fjölgi þannig opinberum störfum hér og var nú kominn tími til,�?? sagði Karl Gauti við Eyjafréttir.
�??�?etta er marks um að þingmenn og ráðherra hafa hlustað á rök okkar í þessu máli og sérstaða Vestmannaeyja er þar með viðurkennd og því ber að fagna. �?að var kominn tími til að hingað til Eyja kæmu opinber störf, ég man hreinlega ekki eftir því að það hafi gerst í háa herrans tíð. �?etta er orðin svo löng barátta fyrir þessu embætti hér að ég gæti auðveldlega leikið Bill Murray í Groundhog Day að þessu leyti án þess að það þyrfti að skrifa til þess ítarlegt handrit,�?? sagði Karl Gauti að lokum.