Í síðustu viku kom til Vestmannaeyja yfirmaður mannvirkjamála UEFA, Thierry Favre til að taka út Hásteinsvöll enda mun ÍBV spila í Evrópukeppninni næsta sumar. Skemmst er frá því að segja að völlurinn uppfyllir ekki skilyrði sambandsins og því munu Evrópuleikir ÍBV að öllu óbreyttu fara fram á öðrum velli, sem uppfyllir reglurnar. Og það sem meira er, ef ekkert verður gert næsta árið, þá mun ÍBV ekki spila heimaleiki sína í Íslandsmótinu í Vestmannaeyjum eftir næsta tímabil eða sumarið 2012.