Styrktartónleikar Lúðrasveitarinnar á morgun
Á morgun, laugardag verða haldnir árlegir Styrktarfélagatónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja. Tónleikarnir verða með hefðbundnu sniði, enda engin ástæða að umbylta því sem í góðum farvegi er. Á efnisskránni verður blanda innlendra og erlendra laga. Einnig má finna eldgömul lög innan um brakandi ferskt nýmeti. Nokkuð áberandi verður tónlist úr teiknimyndum Disney og er full ástæða til að hvetja fólk að taka með sér ungviðið. Aðgangseyrir er 2000 kr. en styrktarfélagar fá um þessar mundir heimsendan miða sem gildir fyrir tvo.
Styrktarfélagar Lúðrasveitar Vestmannaeyja eru dyggur hópur almennings sem lætur sig menningu varða og styður árlega við rekstur sveitarinnar með fjárframlagi. �?etta er einsdæmi á Íslandi og er stór þáttur í því að hægt hefur verið að halda úti þessari starfsemi í Vestmannaeyjum. Kunnum við styrktarfélögum okkar hinar bestu þakkir.
�?á hafa í gegn um tíðina fyrirtæki hér í Eyjum styrkt okkur með fjárframlögum og eru ávallt góðar móttökur þegar við sækjumst eftir slíku.
Einu áhyggjur okkar um þessar mundir snúa að endurnýjun félaga, fækkun blástursnema í Tónlistarskóla Vestmannaeyja er nú þegar farin að hafa áhrif á starfið hjá okkur. �?að væri okkur mikill styrkur að fá fleiri börn í blástursnám. Fyrir utan hversu það er skemmtilegt, þá hefur það sýnt sig að fátt er meira þroskandi en tónlistarnám. Við hvetjum því foreldra til að líta til blásturdeildar Tónlistarskólans þegar kemur að því að velja tómstundastarf fyrir börnin, ekki spillir að Skólalúðrasveitin fer reglulega í Spánarferðir til að taka þar þátt í tónlistarmótum.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.