Svona tel ég að málum sé háttað með samgöngur milli lands og Eyja;
Á faceboosíðu sinni skrifar Haraldur Pálsson hugleiðingu um hvernig hann sér að samgöngum við Vestmannaeyjar verði háttað næstu árin:
�??Sannleikurinn í málinu er að ríkið vill ekki setja meiri fjármuni í að gera þessa höfn nothæfa sem stendur.
�?ví á að tefja frekari útgjöld með því að tala um frekari skipasmíði fram að næsta ári eða til loka þessa árs. �?á mun verða skrifað undir skipasmíðasamning. Afborganir á skipasmíðatíma verða temmilegar fyrir ríkið á meðan smíðatíma stendur.

Nýtt skip verður komið um mitt ár 2018 sem verður nógu lítið fyrir Landeyjahöfn og allt of lítið fyrir eftirspurnina. Notkun kemst þá upp í uþb 80% notkun á höfninni en litla skipið hefur ekki haffæri í �?orlákshöfn. Um mitt ár 2019 verður farið út í að teikna endurbætur á höfnininni þar sem staðan er orðin óbærileg. �?á verður Landeyjahöfn gerð klár og settir þeir fjármunir sem þarf í að klára þessa höfn og verður hún orðin nokkuð góð árið 2021.

Ríkið hefur þannig sparað sér umtalsverða fjármuni, enda tímavirði milljarða gríðarlegir fjármunir og staða ríkissjóðs sennilega aldrei verið verri í sögunni en núna 2011-2014, og var það því aldrei í boði að fara út í slíkar endurbætur á þessum tímum.

�?að kæmi mér ekkert á óvart að menn í ráðuneytunum væru búnir að hugsa þetta einhvernveginn á þessa leið, en að sjálfsögðu er það ekki látið í ljós. Heldur á alltaf að halda fólki í trú um að eitthvað sé að fara gerast á næstunni… Alltaf alveg að fara gerast….

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.