Ef frumvarp til laga um lögreglustjóra og sýslumannsembætti verður samþykkt, verður bæði sýslumaður og lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Upphaflega var áætlað að aðeins yrði sýslumaður í Vestmannaeyjum en á fundi allsherjar- og menntamálanefndar í morgun, var frumvarpinu um lögreglustjóra breytt á þann veg að Vestmannaeyjar eru skilgreindar sem sérstakt lögregluumdæmi. �?etta staðfesti Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi og formaður nefndarinnar. Breytingin er gerð í fullri sátt allra flokka en frumvarpið verður síðan lagt fyrir þing og ef satt reynist að breytingin sé í sátt allra flokka, verður að teljast líklegt að frumvarpið verði samþykkt. Unnur Brá sagði að rökin fyrir breytingunni sé fyrst og fremst komin vegna samgöngumála við Vestmannaeyjar.
Árangur áralangrar vinnu
Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að hér sé um stórt skref að ræða og að hann líti svo á að málið sé nánast í höfn, enda fulltrúar allra flokka í nefndinni sammála. �??Við skulum því gefa okkur að málið fari svona í gegnum þing. Hér er um að ræða árangur af áralangri vinnu sem margir hafa komið að og vil ég þar sérstaklega nefna Karl Gauta, Páley Borgþórsdóttur og Unni Brá Konráðsdóttur formann allsherjar- og menntamálanefndar. �?að er margs að fagna nú þegar þessum árangri hefur verið náð. Í fyrsta lagi þá hefur okkur enn og aftur tekist að standa vörð um hagsmuni Vestmannaeyja og þannig tryggt forræði yfir mikilvægum stoðum í samfélaginu. Í öðru lagi er með þessu viðurkennt að Vestmannaeyjar búa við landfræðilega sérstöðu sem þarf að taka tilliti til. Í þriðja lagi felur þetta í sér að opinberum störfum í Vestmannaeyjum hlýtur að fjölga í kjölfarið. Sjálfstæð embætti sýslumanns annarsvegar og lögreglustjóra hinsvegar merkja það að embættin geta tekið að sér veigamikil hlutverk. Í fimmta lagi þá fagna ég því mjög að núna skuli sitja fólk í ríkisstjórn og í öllum flokkum á þingi sem hefur skilning á sérstöðu Vestmannaeyja,�?? sagði Elliði og bætti svo við:
�??Svo verð ég að lokum viðurkenna að ég er ferlega fegin að þessari 12 ára aðkomu minni að þessum varnarleik fer nú að linna og gott að vita að enn er það svo að þeir fiska sem róa. Nú vil ég sækja fram og stuðla að eflingu á embættunum.�??