Það er bullandi vertíð

Heimasíða Síldavinnslunnar sló í morgun á þráðinn til Birgis Þórs Sverrissonar, skipstjóra á Vestmannaey VE, og Jóns Valgeirssonar, skipstjóra á Bergey VE, og spurði þá um yfirstandandi vertíð. Vestmannaey var að landa í heimahöfn og Birgir Þór var ánægður með fiskiríið. „Það er bullandi vertíð og hörkufiskirí. Við höfum að undanförnu landað fullfermi upp í […]

Fengu 50 kílóa þorsk í Háfadýpinu

Systurskipin Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað afar vel að undanförnu. Vestmannaey fór á sjó klukkan tíu á laugardagsmorgun og var komin til löndunar með fullfermi síðdegis á sunnudag frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Skipið fór út strax að löndun lokinni og mun væntanlega landa fullfermi á ný í fyrramálið. Bergey hélt […]

Leiðinlegt veður en fín veiði það sem af er ári

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum sl. þriðjudag. Síðan var tekið tveggja daga stopp og mun skipið halda á ný til veiða síðdegis í dag. Jón Valgeirsson skipstjóri segir í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar að aflinn í síðasta túr hafi verið blandaður. „Þetta var mest þorskur, koli og ýsa. Við fiskuðum í túrnum á […]

Gengur vel á Bergey

Ísfisktogararnir Gullver NS og Bergey VE lönduðu í byrjun vikunnar og Bergey mun landa á ný í dag. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Steinþór Hálfdanarson, skipstjóra á Gullver, og Ragnar Waage Pálmason, stýrimann á Bergey. Steinþór sagði að afli hefði verið þokkalegur í veiðiferðinni en veðrið leiðinlegt. „Við lönduðum 105 tonnum í heimahöfn á Seyðisfirði á […]

Fullfermi tvisvar í viku

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í fyrradag. Í kjölfar þess verður tveggja daga stopp á meðan skipt verður um togvíra. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Jón Valgeirsson skipstjóra. „Aflinn sem við lönduðum var að mestu þorskur sem við fengum á Pétursey og Vík. Það hefur verið góður afli á þessum slóðum að undanförnu og […]

Fylltu á einum og hálfum sólarhring

Bergey VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum á mánudags morgunn með fullfermi eftir stutta veiðiferð. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Jón Valgeirsson skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Við byrjuðum á Péturseynni og enduðum á Vík. Það var hvöss landátt en þarna gátum við verið í dálitlu skjóli. Það gekk afar vel að fiska […]

Grunur um smit í Bergey VE

Grun­ur er um að smit sé komið upp enn eina ferðina um borð í tog­ar­an­um Ber­gey VE. Skipið er komið til hafn­ar í Vest­manna­eyj­um og er gert ráð fyr­ir að sýna­taka fari fram í dag. Þetta herma heim­ild­ir 200 mílna. Stutt er frá því að stöðva þurfti veiðar þegar skip­verj­ar reynd­ust smitaðir í des­em­ber. Bergey […]

Bergey aftur til veiða

Bergey VE hélt til veiða að loknu kórónuveirustoppi um miðnætti á sunnudag en þá hafði skipið verið frá veiðum í vikutíma. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir frá því að alls smituðust sex menn úr áhöfn skipsins og þeir síðustu úr þeim hópi munu væntanlega ekki geta hafið störf á ný fyrr en á sunnudag. Bergey sigldi strax austur […]

Óvíst með framhaldið hjá Bergey

Fimm úr áhöfn Bergeyjar VE hafa reynst smitaðir af Covid-19. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra Bergs-Hugins, og spurði hvenær þetta hefði gerst. „Það voru áhafnarskipti í Neskaupstað á fimmtudaginn. Einn sem var að koma í land fór að finna fyrir einkennum á föstudag og var þá kominn til Reykjavíkur. Hann fór í hraðpróf […]

Bergey með fullfermi í Neskaupstað

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði í morgun. Aflinn var 120 tonn, mest þorskur og ýsa. Gullver hefur aflað vel að undanförnu og er Rúnar L. Gunnarsson skipstjóri býsna ánægður með veiðina í samtali við vef Síldarvinnslunnar. „Þetta var með því betra. Við vorum núna innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Það hefur […]