Talið saman!
Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki og 4. þingmaður Suðurkjödæmis segir í svari við fyrirspurn Eyjafrétta að staðan í samgöngumálum sé ekki ásættanleg. �??�?að er auðvitað ekki ásættanlegt að íbúar og fyrirtæki í Vestmannaeyjum þurfi að búa við þá miklu skerðingu á þjónustu varðandi samgöngur sem raunin er. Við sem höfum barist fyrir bættum samgöngum milli lands og Eyja á undanförnum árum hljótum öll sem eitt að hvetja aðila kjaradeilunnar til að tala saman og ná samningum. �?að er dýrt fyrir alla aðila að deilan dragist á langinn ekki síst fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Eyjum sem eiga erindi upp á land og fyrirtækin sem ekki ná að koma vörum sínum á markað. �?g mun fylgjast grannt með framgangi samningaviðræðna en ljóst er að við getum ekki horft upp á það að þjónustuskerðingin sé viðvarandi. Við deiluaðila vil ég segja: Talið saman.�??
Rétt er að taka fram að erindið var sent áður en fréttir af lokun flugvallarins bárust.
Hér að neðan má lesa bréf sem ritstjórn Eyjafrétta sendi á alla tíu þingmenn kjördæmisins:
Kæri þingmannahópur Sunnlendinga
Eins og þið kannski vitið, er verkfall háseta, bátsmanna og þerna hafið um borð í Herjólfi. Verkfallið hefur nú staðið í tæpa viku og íbúar Vestmanneyja þegar farnir að finna illilega fyrir verkfallsaðgerðum, sem halda samfélaginu hér í heljargreipum. Skipið siglir nú aðeins eina ferð á virkum dögum, enga á laugardögum og sunnudögum. �?fært hefur verið í Landeyjahöfn undanfarið og verður fram í næstu viku. Verkfallið bitnar einkum á íbúum Vestmannaeyja, þeim sem síst mega við því, barnafjölskyldum og þeim sem þurfa að sækja læknisþjónustu til höfuðborgarinnar. Sem dæmi má nefna íþróttahópa sem annars færu í dagsferð um helgi, þurfa nú að fá frí tvo daga í skóla, gista í þrjár nætur með tilheyrandi aukakostnaði foreldra. Dæmi eru um að þeir sem þurfi að sækja læknisþjónustu, þurfi frí úr vinnu í þrjá daga. Við þetta má bæta raunverulegt tap fyrirtækja í bænum.
Eyjafréttir leita eftir viðbrögðum þingmanna kjördæmisins við þessari stöðu sem upp er komin og hvernig þú ætlar að beita þér fyrir því að samgöngumálum verði komið aftur í viðunandi horf. �?að bendir nefnilega allt til þess að deiluaðilar séu ekkert að nálgast í viðræðum, sem reyndar hafa ekki verið í gangi síðan í síðustu viku. Deiluaðilar hafa ekki séð ástæðu til að funda, svo mikið ber á milli. Er þá ekki komin rík ástæða fyrir hið opinbera að grípa inn í?
Júlíus G. Ingason
ritstjóri Eyjafrétta

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.