Tekist á um geymsluhúsnæði
Geymslan kom að góðum notum þegar kafbátar Bresku hafrannsóknarstofnunarinnar voru settir saman í Eyjum.

Á fundi bæjarráðs í gær var tekið fyrir bréf frá stjórn Þekkingarsetursins vegna geymslu í eigu Vestmannaeyjabæjar sem Setrið hefur haft afnot af sl. fimm ár. Kom fram að Vestmannaeyjabær ætlaði að nýta geymsluna til eigin nota og fór fram á það við ÞSV að geymslan verði tæmd og afhent Vestmannaeyjabæ. Í framhaldi óskaði Þekkingarsetrið eftir því að hafa afnot af geymslunni áfram.

Bæjarráð fól bæjarstjóra, framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og framkvæmdastjóra umhverfis og framkvæmdasviðs að hafa samband við stjórn ÞSV og fylgja eftir því sem rætt var á fundi ráðsins sem meðal annars felst í því að gerður verði leigusamningur um geymsluna við Þekkingarsetrið ef samkomulag næst þar um.

Nýjustu fréttir

Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Þorskurinn eltir síldina fyrir austan
Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.