Tekst ÍBV að ná öðru sætinu?
ÍBV tekur á móti Akureyri í frestuðum leik í Eyjum í dag klukkan 13:30. Leikurinn er jafnframt síðasti leikur 2. umferðar Olísdeildarinnar og sú 3. og síðasta framundan. Með sigri getur ÍBV náð öðru sæti Olísdeildarinnar, sem skiptir máli fyrir niðurröðun í 3. umferðinni en þar er leikjum liðanna raðað eftir stöðu þeirra í deildinni að lokinni 2. umferð. �?að er því mikilvægt fyrir Eyjamenn að ná sigri í dag en ÍBV er í þriðja sæti með 16 stig en Valur er í öðru sæti með 17 stig.
Leikmenn ÍBV voru framlágir eftir síðasta heimaleik gegn Val á fimmtudaginn enda niðurlægðu Valsmenn þá fyrir framan fullt hús af stuðningsmönnum Eyjaliðsins. Leikmenn ÍBV hafa ákveðið að bjóða frítt á leikinn í dag, bæði til að bæta stuðningsmönnum fyrir frammistöðu liðsins gegn Val en ekki síður til að fá sama frábæra stuðning í dag í þessum mikilvæga leik gegn Akureyri.
Eins og áður sagði hefst leikurinn klukkan 13:30.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.