Þakkarefni að ekki varð manntjón

Úr fundargerð bæjarstjórnar fyrir 50 árum:

Árið 1973, þriðjudaginn 23. janúar kl. 10.00 var fundur haldinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja á skrifstofu bæjarstjóra.  Samkvæmt fundargerð  sátu fundinn þeir Magnús H. Magnússon, bæjarstjóri,  Sigurgeir Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar, Gunnar Sigurmundsson, Jón Traustason, Jóhann Friðfinnsson, Reynir Guðsteinsson, Guðmundur Karlsson og Guðlaugur Gíslason. Einnig voru mættir á fundinn yfirlögregluþjónn, slökkviliðsstjóri, rafveitustjóri og bæjartæknifræðingur.

Forseti kvað sér hljóðs og mælti á þessa leið. „Góðir bæjarfulltrúar, þessi bæjarstjórnarfundur er haldinn á örlagastundu. Mikill jarðeldur hefur brotist út á eyjunni okkar og ógnar nú allri byggð á Heimaey. Það mun vera með eindæmum í Íslandssögunni að flest allir íbúar heils bæjarfélags yfirgefi heimili sín fyrirvaralaust eins og gerðist hér í nótt.

Enginn nema Guð einn veit

Það er þakkarefni að náttúruhamfarirnar hafa ekki valdið manntjóni eða slysum og einnig ber að þakka hugarró Vestmanneyinga gagnvart þessum válegu atburðum og síðast en ekki síst gifturíka framkvæmd við flutningana. Ég leyfi mér að þakka öllum sem hér hafa að unnið. Fyrir þessum fundi liggur engin dagskrá en að sjálfsögðu eru náttúruhamfarirnar umræðuefnið.

Við reynum að bjarga því sem bjargað verður, gera þær ráðstafanir sem í okkar valdi eru til hjálpar og varnar þeim ósköpum sem hér steðja að. Enginn nema Guð einn veit, hvaða stefnu eldgosið tekur en augljóst er að byggðin og höfnin eru í hættu. Við getum í því efni aðeins beðið og vonað að okkur verði forðað frá tortímingu og að fólkið fái sem fyrst að koma heim til að lifa og starfa. Það er okkar bæn.

Á fundinum færði bæjarstjórn þakkir til allra sem komu að því að flytja á brott  Vestmannaeyinga. Koma þurfti skilaboðum til skipstjórnarmanna um að þeir yrðu sjálfir að meta hvort þeir eigi að leita hafnar í Eyjum.

Einnig kemur fram að flytja þurfi þá bæjarbúa sem ekki hafi verið falin sérstök skyldustörf og voru enn í Eyjum. Ákveðið var að fara þess á leit við Almannavarnir að varðskip, Herjólfur og fleiri skip fari ekki frá Eyjum fyrst um sinn. Einnig fór bæjarstjórn þess á leit að lögreglan, slökkviliðið, sveit Björgunarfélagsins og félaga í Hjálparsveit skáta yrðu eftir í bænum fyrst um sinn. Þá fól bæjarstjórn bæjarstjóra að athuga með flutning á búfé af eyjunni.

Guðbjörg Sigurgeirsdóttir

Nýjustu fréttir

Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.