Þau eru mörg handtökin áður en nýr Herjólfur hefur siglingar

Í vikunni skýrist hvenær nýr Herjólfur verður afhentur í Póllandi. Opinbera hlutafélagið Vestmannaeyjaferjan Herjólfur tekur við rekstri Herjólfs 30. mars en lengra er í að nýr Herjólfur hefji áætlunarsiglingar.

„Hann er afhentur bara einhvern tíma núna í marsmánuði og síðan tekur náttúrulega einhvern tíma að sigla honum heim. Við áttum í raun von á því að fá hann í janúarlok, febrúar. Hvað tekur við þegar hún er komin? Það sem við þurfum að gera í rauninni er að sigla ferjunni í Landeyjahöfn og í Þorlákshöfn og athuga hvernig það reynist. Hitt er að þjálfa starfsfólkið sem að mun vera í áhöfn. Og síðan er bara að gera skipið rekstrarklárt fyrir siglingakerfið sem á að sigla,“ segir Guðbjartur Ellert Jónsson framkvæmdastjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. í samtali við RÚV.

Guðbjartur sagði að ekki væri hægt að segja til hve langan tíma taki að þjálfa áhöfnina en nýja ferjan er frábrugðin gamla Herjólfi, en ellefu til fimmtán manns verða í áhöfninni.

„Síðan skiptir gríðarlega miklu máli að skipin alveg sama hvort skipið það er sigli í Landeyjahöfn en ekki á Þorlákshöfn. Það fylgir því gríðarleg fjölgun ferðamanna meðan Landeyjahöfn er opin.“

Nýjustu fréttir

Hvatningarverðlaun afhent og styrkir veittir til skólaþróunar
Vegagerðin með opinn fund um Land­eyja­höfn
Agnes Lilja og Klara í lokahóp u-18
Víkin heimsótti Vinnslustöðina
Herjólfur: Áætlun föstudagsins gefin út
ÍBV biðst afsökunar á ummælum í garð Hafdísar
Bókunarkerfi Herjólfs niðri eftir eldsvoða í Amsterdam
Andri og Elís Þór í lokahóp u-20 fyrir EM
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.