Þjóðin með POWER að vopni

Um helgina bankar sölufólk og býður landsmönnum SÁÁ-álfinn til kaups. Álfurinn í bílnum, á skrifborðinu og í anddyri fyrirtækjanna er vitni um samhjálp okkar til þeirra sem þjást af fíknisjúkdómum. Nú steðjar mikil ógn að lífi ungra fíkla og líf margra er í hættu. Við ætlum að snúa vörn í sókn fyrir unga fólkið með Dilja Pétursdóttir í farabroddi. Hún leiðir íslenska fánann og álfinn inn á stóra sviði í Liverpool með sannkölluðu Eurovision POWER.

Við fylgjum henni öll og tökum með okkur unga fólkið í landinu sem bíður eftir þeim krafti sem þarf til þessa að snúa lífinu aftur á sigurbraut. Það þarf samstöðu og kraft, POWER allar þjóðarinnar til að sigur vinnist í lífi unga fólksins sem berst við fíknina. Við sitjum saman og tökumst hönd í hönd og styðjum unga fólkið til betra lífs. Öll þjóðin undir kraftmiklum söng Diljár, Power í þágu unga fólksins sem fær að sjá úr hverju við erum gerð.

Það er rétt um 40 dagar í sumarsólstöður og sólin gefur okkur birtu inn í lífið án þess að ganga til viðar á Jónsmessunótt. Það er birtan og nýja lífið sem álfurinn ber inn í líf svo margra. Við þurfum á samstöðu þjóðarinnar að halda þegar sigur lífsins er í hættu. Við þurfum hvert og eitt að leggja unga fólkinu lið, leggja sjálfum okkur og leggjum lífinu lið. Finna þá tilfinningu sem samhjálpin gefur hverju hjarta sem á pláss fyrir álf sem gerir kraftaverk

Sölufólk betra lífs fyrir unga fólkið, býður landsmönnum álfinn til sölu alla helgina. Það er óslitin keðja sölufólks sem færir álfinn inn á hvert heimili og hvern vinnustað næstu daga. Þá gefum við fyrirtækjum og styrktaraðilum tækifæri til að kaupa stóra álfinn sem tákn um kraftmikið framlag, POWER fyrir unga fólkið.

Gefum unga fólkinu meira POWER!! og kaupum álfinn af sölufólki SÁÁ um helgina.

 

Nýjustu fréttir

Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.