�?rengt að rekstri félagsmiðstöðvarinnar
�?eir sem þekkja starfið sem fram fer í félagsmiðstöðvum, ekki síst hér í Eyjum, gera sér grein fyrir mikilvægi þess. Aðrir sem ekki þekkja eiga að nýta sér þá valkosti sem boðið er upp á, við kynningu á starfinu svo sem í opnu húsi og í almennri starfsemi þess. �?eir sem til þekkja varast að þrengja að slíkum rekstri, með fjárveitingum, sem kostur er. �?að eiga allavega ráðamenn að þekkja, þekkja starf sem þar er unnið og hefur verið unnið í gegnum tíðina.
Allar götur frá mínum tíma í félagsmiðstöðvarstarfi hafa ráðamenn gert sér grein fyrir því að fjölmargir hafa átt þar skjól og notið leiðsagnar og ánægju sem starfinu fylgir, ekki síst þeir sem ekki hafa �??fallið�?? inn í annað tómstunda-, æskulýðs- og íþróttastarf, eða haft fjárhagslega efni á því.
Í öllum könnunum sem ég veit um, þar sem spurt var �??Hvert leitar þú helst þegar þú telur þig þurfa að deila vandamálum þínum eða njóta leiðsagnar?�?? var fyrsta svar oftast �??Til starfsmanna félagsmiðstöðvarinnar�??, annað svar �??Til þjálfara íþróttafélagsins�??. Með allri virðingu fyrir foreldrum og kennurum, þá voru þeir neðar á svarlistanum.
Fórnarkostnaðurinn er mikill ef þrengja á að starfsemi Rauðagerðis, svo mikið er víst, og skora ég á þá sem ráða að gera sér grein fyrir því og þá á ég ekki bara við um meirihluta bæjarstjórnar, heldur alla bæjarstjórn og sviðsstjóra bæjarins. Alvara málsins er mikil, það verður fólk að gera sér grein fyrir.
Guðmundur �?. B. �?lafsson
fyrrum forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar �??Féló�??, tómstunda- og íþróttafulltrúi og almennur borgari
Nánar er fjallað um málið í næsta tölublaði Eyjafrétta sem kemur út síðar í dag, miðvikudag.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.