Til þingmanna, ráðherra og fréttamanna
Ferðamálasamtök Vestmannaeyja hafa þungar áhyggjur af þeirri stöðu sem nú er uppi í samgöngum Eyjamanna. �?llum hlýtur að vera ljóst að það gengur ekki að loka heilu byggðarlagi án þess að það hafi varanlegar eða langvarandi afleiðingar. Sú pattstaða sem nú er komin í kjaradeilu undirmanna Herjólfs og rekstraraðila Herjólfs eykur ekki á bjarstsýnina um að samningar náist í nánustu framtíð. Á meðan blæðir heilu samfélagi og ljóst er að áhrif deilnanna leggjast þungt á ferðaþjónustuna í Eyjum.
Ferðamálasamtök Vestmannaeyja skora á deiluaðila að endurskoða sýn sína á verkfallið og krefjast þess jafnframt að Alþingi tryggi rétt okkar Eyjamanna til að ferðast um þjóðveg okkar óháð kjaradeilum launþega og vinnuveitenda.
Fyrir hönd stjórnar Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja
Kristín Jóhannsdóttir
Ferða- og markaðsfulltrúi Vestmannaeyjabæjar

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.