Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2
Ægisgata 2. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tilboð upp á 480 milljónir króna í fasteignina að Ægisgötu 2, með fyrirvara um staðfestingu bæjarstjórnar.

Eignin, sem er á 2. og 3. hæð hússins, var sett í söluferli þann 16. febrúar síðastliðinn og óskað eftir tilboðum með fresti til 20. mars. Engin formleg tilboð bárust innan þess frests.

Á fundi bæjarráðs 25. mars var samþykkt að halda eigninni áfram í auglýsingu. Nú hefur hins vegar borist tilboð sem ráðið hefur farið yfir og samþykkt fyrir sitt leyti.

Bæjarstjóra hefur verið falið að undirrita samninginn, með fyrirvara um endanlega staðfestingu bæjarstjórnar.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.