Tilkynning vegna Lundaballs 2025
DSC_2448
Lundaballið er alltaf vinsælt. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Dagsetning Lundaballsins 2025 er óbreytt þann 27. september n.k.  Borið hefur á því að fölir einstaklingar hafa komið að máli við forsvarsmenn Lundaballsins 2025 og spurt þá hvort þeir hyggist virkilega halda ballið í lok septembermánaðar. Hvort ekki sé öruggara að fresta ballinu í a.m.k. 2 mánuði ef ekki lengur vegna þeirrar gríðarlegu vinnu og álags sem framkvæmd Lundaballsins hefur í för með sér. Hinir fölu einstalingar segjast ekki enn búnir að jafna sig á framkæmd Lundaballsins 2024 þó svo að þeir hafi dvalist langdvölum í Hveragerði frá síðasta balli. Hugsanlega munu þeir taka sér 14 ára hvíld eins Elliðaeyingar tóku sér vegna álagsins.

Þessi sjónarmið voru lögð undir helstu framkvæmdamenn Lundaballsins 2025, Jarla Helliseyjar, þá Braga Steingrímsson á níræðisaldri og Svavar Steingrímsson sem fer að detta í tíræðisaldurinn. Þeir börðu í borðið og sögðu: Lundaballið verður haldið á réttum tíma. Það verður þann 27. september 2025. Miðasala vel. Það skal tekið fram að reyndar sást ekki á borðinu við högg þeirra bræðra.

 

Steingrímssynir

Svavar og Bragi Steingrímssynir. Mynd/aðsend

 

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.