Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní - uppfært
Baldur í Landeyjahöfn. Mynd/Óskar Pétur.

Frá og með 5. júní stóð til að Herjólfur hæfi átta ferða siglingaáætlun til og frá Landeyjahöfn. Vegna þess að ferjan siglir enn á einni skrúfu verður hins vegar ekki hægt að standa við þá áætlun að svo stöddu. Þett

Herjólfur mun því áfram sigla hefðbundna sjö ferða áætlun þar til annað verður tilkynnt. Frá og með mánudeginum 8. júní mun ferjan Baldur jafnframt bætast við áætlunina og verða þá alls 12 ferðir í boði til og frá Vestmannaeyjum.

Ferðir sem áætlaðar voru kl. 13:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 14:00 frá Landeyjahöfn dagana 5.–7. júní falla niður. Farþegar sem áttu bókað í þær ferðir eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til að færa bókun sína, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu segir að ferjurnar Baldur og Herjólfur munu báðar sinna siglingum til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní. Þetta fyrirkomulag verður við lýði á meðan unnið er að viðgerð á annarri aðalvél Herjólfs sem bilaði í apríl. Frá þessu var greint á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum síðdegis í dag, þar sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti breytingarnar.

Fram kemur í tilkynningunni að talið hafi verið nauðsynlegt að kalla Baldur til vegna mikilla anna í farþega- og vöruflutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstu vikum. Þá eru fjölmennir íþróttaviðburðir fram undan sem auka enn álag á samgöngukerfið.

Herjólfur hefur frá því í apríl siglt á einni vél eftir alvarlega bilun í annarri aðalvél skipsins. Vegna þess hefur skipið takmarkaðri getu til að sigla til Landeyjahafnar þegar veður og sjólag versna. Samkvæmt stjórnarráðinu getur Herjólfur illa siglt til hafnarinnar þegar ölduhæð fer yfir tvo metra eða vindhraði fer yfir 12 metra á sekúndu, aðstæður sem eru ekki óalgengar á þessum árstíma.

Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní. Þegar vélin kemur til landsins og verið er að koma henni fyrir í skipinu mun Baldur jafnframt leysa Herjólf af í nokkra daga.

Særún tekur við í Breiðafirði

Vegna þess að Baldur verður við þjónustu í Vestmannaeyjum mun ferjan Særún sinna siglingum til Flateyjar og annarra viðkomustaða í Breiðafirði. Ný siglingaáætlun fyrir Breiðafjörð verður kynnt síðar.

Baldur hefur áður verið varaskip

Baldur hefur um árabil verið skilgreint varaskip Herjólfs og er heimild fyrir því í samningum Vegagerðarinnar við rekstraraðila skipsins að skipið taki við verkefnum Herjólfs við sérstakar aðstæður.

Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að samráð hafi verið haft bæði við íbúa í Vestmannaeyjum og í Breiðafirði vegna þessara tímabundnu breytinga.

Miklar væntingar bundnar við nýjan dýpkunarverktaka

Í tilkynningunni er jafnframt greint frá því að belgíska fyrirtækið Jan de Nul taki við dýpkun Landeyjahafnar í haust. Vegagerðin hefur samið við fyrirtækið til ársins 2029 og eru væntingar bundnar við að öflugri búnaður og aukin viðbragðsgeta bæti stöðuna í höfninni til framtíðar.

Landeyjahöfn hefur verið erfið viðureignar í vetur þar sem óhagstætt veðurfar og bilanir í dýpkunarbúnaði hafa torveldað viðhaldsdýpkun, segir að endingu í tilkynningu ráðuneytisins.

Breytingar á bókuðum ferðum frá Vestmannaeyjum

07:00 – óbreytt
09:00 – færist til 09:30
11:00 – færist til 12:00
13:00 – færist til 13:15 með Baldri
16:00 – færist til 14:30
18:00 – færist til 17:00
20:00 – færist til 19:30
22:00 – óbreytt

Breytingar á bókuðum ferðum frá Landeyjahöfn

08:00 – færist til 08:15
10:00 – færist til 10:45
12:00 – færist til 13:15
14:00 – færist til 14:30 með Baldri
17:00 – færist til 15:45
19:00 – færist til 18:15
21:00 – færist til 20:45
23:00 – færist til 23:15

Áætlun Baldurs

Baldur mun sigla frá Vestmannaeyjum kl. 08:15, 10:45, 13:15, 15:45 og 18:15.

Frá Landeyjahöfn mun Baldur sigla kl. 09:30, 12:00, 14:30, 17:00 og 19:30.

Nýjustu fréttir

Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Nýr Þjóðarpúls Gallup: Breytingar á fylgi í Suðurkjördæmi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.