Tryggvi áfram formaður Hugverkaráðs
Mynd/Birgir Ísleifur Á myndinni eru, talið frá vinstri, Reynir Scheving hjá Zymetech, Fida Abu Libdeh hjá Geosilica, Þóra Björg Magnúsdóttir hjá Coripharma, Róbert Helgason hjá KOT Hugbúnaður, Tryggvi Hjaltason hjá CCP, Inga Lind Karlsdóttir hjá Skot Productions, Jóhann Þór Jónsson hjá atNorth, Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir hjá Marel, og Þorgeir Óðinsson hjá Directive Games.

Nýtt Hugverkaráð Samtaka iðnaðarins hefur verið skipað. Hugverkaráð SI hefur undanfarin ár verið vettvangur umræðu um stöðu hugverkaiðnaðar á Íslandi, greininga og margvíslegrar stefnumótunar.

Í nýju Hugverkaráði SI 2021-2023 sitja Tryggvi Hjaltason hjá CCP sem er formaður, Soffía Kristín Þórðardóttir hjá Origo, Vigdís Tinna Sigurvaldadóttir hjá Marel, Fida Abu Libdeh hjá Geosilica, Róbert Helgason hjá KOT Hugbúnaður, Reynir Scheving hjá Zymetech, Þóra Björg Magnúsdóttir hjá Coripharma, Lilja Ósk Snorradóttir hjá Pegasus, Inga Lind Karlsdóttir hjá Skot Productions, Jóhann Þór Jónsson hjá atNorth, Alexander Picchietti hjá Verne Global, Þorgeir Óðinsson hjá Directive Games, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Hugverkaiðnaður skapaði 15,8% af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins árið 2020 og er því orðinn fjórða stoðin í gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins ásamt sjávarútvegi, orkusæknum iðnaði og ferðaþjónustu. Innan hugverkaiðnaðar á Ísland eru meðal annars fyrirtæki í tölvuleikjaiðnaði, líf- og heilbrigðistækni, upplýsingatækni, kvikmyndaiðnaði, gagnaversiðnaði og hátækniframleiðslu.

Undanfarið hafa mörg framfaramál hlotið brautargengi sem efla íslenskan hugverkaiðnað, meðal annars hækkun á endurgreiðslum á rannsókna- og þróunarkostnaði, hærri framlög til Tækniþróunarsjóðs, stuðningur við erlenda sérfræðinga, fyrirhugaður nýr fjarskiptasæstrengur og vaxandi skilningur á fjölbreyttari nálgun í menntakerfinu. Fram undan eru fjölmörg viðfangsefni nýs Hugverkaráðs SI sem snúa meðal annars að frekari umbótum í starfsumhverfi fyrirtækja í hugverkaiðnaði og þeirri umgjörð sem nýsköpun er búin hér á landi. Ef fleiri framfaraskref verða stigin telur Hugverkaráð SI að hugverkaiðnaður á Íslandi hafi alla burði til að stækka mikið til framtíðar og skapa fjölmörg ný og verðmæt störf.

 

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.