Tvær tilkynningar um búðarhnupl
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í vikunni án þess þá að alvarlegt mál hafi komið upp. Skemmtanahaldið gekk þokkalega fyrir sig um liðna helgi en eitthvað var þó um að aðstoða hafi þurft fólk vegna ölvunarástands þess.
Lögreglan fékk í vikunni tvær tilkynningar um búðarhnupl og er málið upplýst í öðru tilvikinu þar sem um var að ræða ungan dreng. Í hinu tilvikinu er ekki ljóst með málavexti og er málið í rannsókn. Ekki var um mikil verðmæti að ræða í þessum tveimur tilvikum.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna við aksturinn og þá var einn ökumaður sektaður fyrir að aka án þess að hafa öryggsibeltið spennt í akstri.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt í vikunni en um var að ræða óhapp við Fiskibarinn þar sem bifreið sem ekið var austur Strandveg rann til í hálku með þeim afleiðingum að það lenti á húsi Fiskibarsins. Minniháttar tjón varð bæði á bifreiðinni sem og húsinu.
Lögreglan vill minna ökumenn og eigendur á að kanna með ljósabúnað ökutækja sinna, núna þegar svartasta skammdegið er að ganga í hönd.

Nýjustu fréttir

Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.