Tveir bikarar og silfur í hús hjá ÍBV
ÍBV eignaðist tvo bikarmeistara í gær þegar bikarúrslit yngri flokka í handbolta fóru fram í Laugardalshöll. Yngra ár 4. flokks kvenna vann �?ór/KA í æsispennandi úrslitaleik sem var framlengdur og eldra ár 4. flokks karla lagði ÍR með miklum yfirburðum í sínum úrslitaleik. �?riðja lið félagsins sem var í úrslitum, tapaði svo á dramatískan hátt gegn Fram í sínum úrslitaleik. Staðan var jöfn og ÍBV í sókn þegar tæp mínúta var til leiksloka en Eyjastúlkur skutu í stöng, Fram brunaði í sókn og skoraði sigurmarkið þegar fimm sekúndur voru eftir. En að koma þremur flokkum í bikarúrslit er ekki lítill árangur en aðeins eitt félag átti jafn marga fulltrúa í bikarúrslitum og ÍBV en það var Fram, sem átti einnig þrjú lið í úrslitum.
Vel var tekið á móti krökkunum þegar þau komu til Eyja í gærkvöld með Herjólfi en meðfylgjandi myndbönd sýna frá heimkomunni.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.