Tveir gistu fangageymslur eftir húkkaraballið
default
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Hið árlega húkkaraball fór fram í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Að sögn lögreglu var nóttin fremur róleg og góður bragur á skemmtanahaldinu. Tveir gistu þó fangageymslur vegna ölvunar.

Lögreglan verður sem fyrr með mikinn viðbúnað yfir Þjóðhátíð og mun leggja sérstaka áherslu á að koma í veg fyrir vopnaburð hátíðargesta. Tekið verður hart á brotum af því tagi.

Þá hvetur lögreglan hátíðargesti til að vera vakandi fyrir umhverfi sínu, stuðla að öryggi í samskiptum og virða mörk annarra. Fólk er jafnframt hvatt til að láta vita ef það verður vart við óæskilega hegðun.

„Þannig getum við stuðlað að góðri skemmtun án ofbeldis, átaka eða áreitni,“ segir í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.