Lóa Baldvinsdóttir er ráðin í stöðu aðstoðarleikskólastjóra á leikskólanum Kirkjugerði. Lóa er leikskólakennari og hefur starfað sem deildarstjóri á Kirkjugerði sl. átta ár. Einn aðili sótti um stöðuna.
�?órey Svava �?varsdóttir er ráðin sem aðstoðarskólastjóri við Víkina. �?órey sem er grunnskólakennari að mennt hefur starfað sem deildarstjóri á Víkinni í þrjú ár og verið hægri hönd leikskólastjóra í fjarveru hans. Tveir sóttu um stöðuna.
Kristín Ellertsdóttir gengdi áður stöðu aðstoðarleikskólastjóra.
Vestmannaeyjabær þakkar í tilkynningu sinni Kristínu fyrir samstarfið og um leið óskar Lóu og �?óreyju til hamingju með sarfið..