Una og Helga Sóley sigruðu söngkeppni NFFÍV
Í gærkvöldi for fram Söngkeppni Nemendafélags Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Keppnin er undankeppni fyrir Söngkeppni Framhaldsskólana en sigurvegarin mun taka þátt í henni fyrir hönd FÍV. Alls voru það sjö söngatriði sem tóku þátt að þessu sinni, hvert öðru betra og átti dómnefnd kvöldsins erfitt verk fyrir höndum. En dómnefndina skipuðu þau Sunna Guðlaugsdóttir, Birgir Nielsen og Jón Jónsson, kynnir var Hjalti Enok Pálsson. Á meðan dómnefndin réð ráðum sínum flutti sönghópurinn Holí Mólí siguratriðið frá síðasta ári en þeir voru valdir vinsælasta atriðið á lokakeppni framhaldsskólana. Áður en dómnefndin tilkynnti úrslitin tók Jón að sjálfsögðu lagið við mikinn fögnuð áhorfenda en húsfyllir var í sal framhaldsskólans.
Veitt voru fern verðlaun, vinsælasta atriðið var valið atriði Guðmundar Ásgeirs Grétarssonar en hann söng sína eigin útgáfu af eurovisionlaginu �?g á líf. �?riðja sætið hlaut Svanur Páll Vilhjálmsson, Sindri Freyr Guðjónsson varð í öðru sæti en besta atriði kvöldsins var valinn dúet þeirra Unu �?orvaldsdóttur og Helgu Sóleyjar Aradóttur sem sungu Bítlalagið Here comes the sun en myndband af flutningi þeirra má sjá hér að ofan.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.