Ungir leikmenn framlengja við ÍBV
Breki, Sigurnýjas og Björgvin

“Við kynnum með ánægju að þeir Arnar Breki Gunnarsson, Björgvin Geir Björgvinsson og Sigurnýjas Magnússon hafi framlengt við ÍBV til næstu tveggja ára. Allir eru þeir fæddir 2002 og glæddu sumarið sem leið lífi hér á Eyjunni,” segir í tilkynningu frá ÍBV.

Arnar Breki lék 19 leiki með KFS í 3. deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk. Kraftur hans og dugnaður skipti oft miklu í leikjum liðsins. Björgvin Geir lék 20 leiki í vörninni og stóð sig mjög vel. Björgvin hefur sýnt miklar framfarir síðustu sumur og hélt aftur af mörgum kanntmönnum deildarinnar. Þá lék Sigurnýjas 7 leiki en hann var að jafna sig á meiðslum en hann verður klár í slaginn í sumar.

Nýjustu fréttir

Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.