ÚTi Í EYJUM

Eyjatónleikar verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu laugaradagskvöldið 22.janúar næstkomandi.  Fjöldi frábærra listamanna koma þá saman og leika öll yndislegu Eyjalögin.  Það er löngu kominn tími á að við fáum tækifæri á að rifja upp öll uppáhalds Eyjalögin, syngja með, upplifa sanna Eyjastemningu, koma saman og gleðjast.

Við höfum alltaf leitast við að blanda saman landsþekktu listafólki og listafólki úr Eyjum.  Á þessum 10 árum er fjöldi listamanna kominn langt á annað hundraðið.  Nú fáum við til liðs við okkur Magna Ásgeirs, Jóhönnu Guðrúnu, Kristján Kristjánsson (KK), Hreim Örn Heimisson höfund Þjóðhátíðarlagsins í ár, Magnús Kjartan Eyjólfsson brekkusöngvara 2021 og Eyjafólkið Rúnar Kristinn Rúnarsson (Vöggssonar), Söru Renee og Unu Þorvaldsdóttur.

Einvalalið er í hljómsveitinni undir styrkri stjórn Þóris Úlfarssonar sem tekur aftur við hljómsveitarstjórninni og leikur á hljómborð.  Sveitin er að öðru leiti skipuð nánast sömu aðilum og mörg undanfarin ár en þeir eru Birgir Nielsen Þórsson á trommur, Eiður Arnarsson á bassa, Jón Elfar Hafsteinsson á gítar, Matthías Stefánsson á gítar og fiðlu, Kjartan Valdemarsson á hljómborð og harmonikku, Ari Bragi Kárason á trompet og Sigurður Flosason á saxafón, flautur og slagverk og Kristján Gíslason og Alma Rut Kristjánsdóttir sjá um raddir.

Að venju verða þarna flutt mörg af bestu og yndislegustu lögum Eyjanna og svo notum við tímann vel, mætum snemma, gefum okkur góðan tíma í hléi og nýtum tímann eftir tónleikanna, því þetta er jú eitt allra stærsta og glæsilegasta árgangs-, ættar- og vinamót veraldar.

Miðasala hefst föstudaginn 8.október klukkan 12 á hádegi á harpa.is og tix.is og í miðasölu Hörpu í síma 528-5050.

Allar frekari upplýsingar veitir undirritaður – Fyrir hönd Stóra sviðsins ehf
Bjarni Ólafur – gsm 896-6818

Nýjustu fréttir

Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Nám sem tengir saman skóla, atvinnulíf og samfélag
Draumar æskuáranna rættust
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.