Á morgunfundi Vegagerðarinnar verður fjallað um hafnadeild Vegagerðarinnar og rannsóknir tengdar höfnum, sjóvörnum og sjólagi, auk þess sem sérstakt erindi verður um Landeyjahöfn. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 og í beinu streymi, sem sjá má hér að neðan.
Starfsemi Vegagerðarinnar er fjölbreyttari en margir myndu halda. Innan Vegagerðarinnar er starfrækt hafnadeild sem sinnir fjölbreyttum verkefnum tengdum höfnum og sjóvörnum, gerir hafna- og strandrannsóknir, vinnur með höfnum landsins að því að móta hafnabætur og hefur umsjón með ríkisstyrktum hafnarframkvæmdum. Hafnadeildin hefur einnig umsjón með Landeyjahöfn, sem er eina höfnin í eigu Vegagerðarinnar.
Landeyjahöfn fær veglegan sess
Á fundinum mun Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnadeildar, fjalla um verkefni deildarinnar í stórum dráttum.
Landeyjahöfn fær veglegan sess á fundinum en Kjartan Elíasson verkfræðingur fjallar um sögu hafnarinnar og reynsluna af henni.
Bryndís Tryggvadóttir, verkfræðingur, fjallar um sjóvarnir og lágmarkslandhæð á lágsvæðum. Þar ræðir hún um sjóvarnir og hvernig þær eru hannaðar út frá mati á flóðahættu og fleiri þáttum til að takmarka ágjöf sjávar og flóðahættu.
Morgunfundurinn verður haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Opið er á meðan húsrúm leyfir og það verður heitt á könnunni. Fundinum er einnig streymt og hefst klukkan 9:00-10:15 í dag, fimmtudag.
Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson
Fyrirspurnir má senda inn í gegnum vefsíðuna slido.com. Aðgangsorð: #hafnir https://app.sli.do/event/9B28K78VitaEfhX3aQ4FNg




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.