Veiðigjalda-frumvarpi dreift á Alþingi
Fundur FJR
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra kynntu breytingu á lögum um veiðigjald 25. mars sl.. Ljósmynd: Stjórnarráðið

Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um leiðréttingu á veiðigjöldum hefur verið dreift á Alþingi að lokinni framlagningu í ríkisstjórn og meðferð þingflokka.

Frumvarpið var birt í samráðsgátt frá 25. mars sl. til 3. apríl sl. Samtals bárust 112 umsagnir frá einstaklingum, fyrirtækjum, hagsmunaaðilum, sveitarfélögum, félagasamtökum og stofnunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.

Þar segir jafnframt að meirihluti umsagna hafi verið jákvæður gagnvart þeim tillögum sem kynntar voru í drögunum. Frá sveitarfélögum komu nokkrar umsagnir þar sem reifaðar voru áhyggjur um að hækkunin væri of brött og skortur væri á greiningum á áhrifum frumvarpsins. Tilgangur frumvarpsins er að gera breytingar á veiðigjöldum sem greidd eru af útgerðum með því að breyta viðmiðum aflaverðmætis í reiknistofni veiðigjalds fyrir síld, kolmunna, makríl, þorsk og ýsu. Þannig muni veiðigjald endurspegla raunverulegt aflaverðmæti og þar með réttlát auðlindagjöld fyrir aðgang að auðlindinni. Einnig eru lagðar til breytingar á frítekjumarki vegna áhrifa frumvarpsins á litlar- og meðalstórar útgerðir. Undirbúningur frumvarpsins mótaðist að miklu leyti af áherslum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar og markmiðum fjármálaáætlunar.

Helstu breytingar sem gerðar voru á frumvarpsdrögum að samráði loknu eru:

  • Brugðist er við ákalli sveitarfélaga um að gæta að áhrifum á litlar og meðalstórar útgerðir og lagt til að frítekjumark hækki verulega. Frítekjumark nemur 40% af fyrstu 9 millj. kr. álagningar hvers árs í öllum nytjastofnum nema í þorski og ýsu. Frítekjumark í þorski og ýsu skal nema 40% af fyrstu 50 millj. kr. álagningar veiðigjalds hvers árs hjá hverjum gjaldskyldum aðila. Með þessum breytingum verða áhrif frumvarpsins á litlar og meðalstórar útgerðir vegna hækkunar veiðigjalds mun minni en áður.
  • Í frumvarpinu er líka brugðist við ábendingum um skort á mati á áhrifum. Þannig er meðal annars bætt við greiningum í greinargerð frumvarpsins um áhrif frumvarpsins á u.þ.b. 100 stærstu fyrirtækin, áhrifamati á heildarskattlagningu sjávarútvegsfyrirtækja og ítarlegri samantekt um verðmyndun í Noregi.

Frumvarpið mun hafa jákvæð áhrif á ríkissjóð. Áætlað er að tekjur af veiðigjaldi uppsjávarfiskstegunda hækki um 3-4 milljarða kr. árlega og veiðigjald fyrir þorsk og ýsu hækki um 5-6 milljarða kr. árlega miðað við óbreytt aflamagn. Með þeim breytingum sem frumvarpið gerir ráð fyrir má áætla að álagt veiðigjald verði um 19,5 milljarðar árið 2026 en að teknu tilliti til frítekjumarks má áætla að innheimt veiðigjöld verði 17,3 milljarðar árið 2026. Án þeirrar leiðréttingar sem boðuð er samkvæmt frumvarpinu væri áætlað álagt veiðigjald um 11,2 milljarðar króna á grundvelli núgildandi laga. Frumvarpið gerir ráð fyrir að 30 stærstu sjávarútvegsfyrirtækin greiði 90% af veiðigjöldum að loknum breytingum.

Gert er ráð fyrir að innheimt veiðigjald verði 18-19 milljarðar á árunum 2027-2030. Í þeirri áætlun er gert ráð fyrir að gefinn verði út loðnukvóti. Mikil óvissa er um reiknistofn veiðigjalds þar sem hann byggist á afkomu fyrirtækja. Einnig geta sveiflur á milli ára verið tilkomnar vegna breytinga á aflaverðmæti, kostnaði, gengi, aflamagni og skattalegra afskrifta og þannig haft áhrif á áætlanagerðina, segir að endingu í tilkynningunni.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.