Vera og Telma áfram í ÍBV
Portúgölsku handknattleikskonurnar tvær, Vera Lopes og Telma Amado, hafa skrifað undir nýjan samning hjá ÍBV. Samningurinn er til eins árs og munu þær því leika áfram með liðinu næsta vetur. Vera hefur farið mikinn í vetur, bæði í vörn og sókn en Vera er markahæst í Olísdeild kvenna, búin að skora 174 mörk í 21 leik eða rúmlega 8 mörk að meðaltali. Telma byrjaði rólega en hefur verið að sækja í sig veðrið í síðustu leikjum en alls hefur hún skorað 59 mörk í 21 leik, þar af 10 mörk í síðustu tveimur leikjum ÍBV.
ÍBV hefur þegar tryggt sér heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð úrslitanna og gæti með sigri í síðasta leiknum á laugardaginn, tryggt sér þriðja sæti deildarinnar. ÍBV tekur á móti FH á laugardaginn í Eyjum klukkan 13:30.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.