Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Suðurlands í skaðabótamáli bæjarins gegn útgerðarfélaginu Huginn ehf., Vinnslustöðinni hf. og Vátryggingafélagi Íslands hf. Málið snýst um skemmdir sem urðu á neysluvatnslögn í Vestmannaeyjahöfn í nóvember 2023.
Ákvörðunin var tekin samhljóða á fundi bæjarráðs í dag. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri staðfesti áform bæjarins í samtali við fréttastofu RÚV.
Í niðurstöðu bæjarráðs kemur fram að mikilvægt sé að fá úr því skorið fyrir Landsrétti hvort þak á ábyrgð standist. Sömu hagsmunir og ástæður séu enn fyrir hendi og þegar ákveðið var að krefjast fullra bóta vegna tjónsins.
Bæjarráð fer með heimildir bæjarstjórnar meðan á sumarleyfi hennar stendur og telst ákvörðunin því fullafgreidd.
Vestmannaeyjabær höfðaði málið vegna skemmda sem urðu á neysluvatnslögninni þegar akkeri fiskiskipsins Hugins VE-55 dróst eftir botni Vestmannaeyjahafnar í nóvember 2023.
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Huginn, Vinnslustöðina og VÍS af kröfum Vestmannaeyjabæjar. Bærinn hyggst nú freista þess að fá þeirri niðurstöðu breytt fyrir Landsrétti.
Þótt niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands hafi verið sú að sýkna Vinnslustöðina hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. af kröfum Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðarans snerist málið í raun um þrjú meginálitaefni sem dómurinn þurfti að skera úr um áður en niðurstaðan lá fyrir. Í dómnum er skorið úr um hver teljist útgerðarmaður Hugins VE 55. Því næst […]