Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
Héraðsdómur þurfti að skera úr um hver væri útgerðarmaður skipsins, háttsemi hverra ætti að meta og hvort skilyrði væru til að svipta Huginn ehf. rétti til að takmarka ábyrgð sína
heradsdomur_sudurlands-2.jpg
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdóm­i Suður­lands.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Þótt niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands hafi verið sú að sýkna Vinnslustöðina hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. af kröfum Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðarans snerist málið í raun um þrjú meginálitaefni sem dómurinn þurfti að skera úr um áður en niðurstaðan lá fyrir.

Í dómnum er skorið úr um hver teljist útgerðarmaður Hugins VE 55. Því næst er fjallað um háttsemi hverra beri að leggja til grundvallar þegar metið er hvort heimilt sé að víkja frá takmörkunarákvæðum siglingalaga. Að lokum er lagt mat á hvort forsvarsmenn Hugins ehf. hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi eða ásetning sem gæti leitt til þess að félagið missti rétt sinn til að takmarka bótaábyrgð.

Huginn talinn útgerðarmaður skipsins

Fyrsta álitaefnið laut að því hvort Vinnslustöðin hf. eða Huginn ehf. bæri stöðu útgerðarmanns Hugins VE 55. Vestmannaeyjabær og Ljósleiðarinn byggðu meðal annars á því að Vinnslustöðin hefði í reynd haft með rekstur skipsins að gera. Huginn ehf. er að fullu í eigu Vinnslustöðvarinnar og starfsemi félaganna er að ýmsu leyti samtvinnuð.

Héraðsdómur féllst hins vegar ekki á að það eitt leiddi til þess að Vinnslustöðin bæri ábyrgð sem útgerðarmaður. Dómurinn taldi Huginn ehf., sem er skráður eigandi skipsins, vera útgerðarmann þess. Sú niðurstaða varð meðal annars til þess að Vinnslustöðin var sýknuð af kröfum stefnenda.

Tengd frétt: Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu

Háttsemi hverra átti að meta?

Næsta álitaefni varðaði það hvaða háttsemi skipti máli þegar metið var hvort Huginn ehf. gæti notið þeirra reglna siglingalaga sem heimila útgerðarmönnum að takmarka bótaábyrgð sína. Stefnendur töldu að líta bæri til háttsemi skipstjóra, yfirmanna skipsins, annarra skipverja og starfsmanna félagsins við það mat.

Stefndu byggðu hins vegar á því að samkvæmt siglingalögum og alþjóðasamningi, sem íslensku lögin byggja á, bæri aðeins að horfa til háttsemi þeirra sem fara með æðstu stjórn félagsins, það er stjórnarmanna og framkvæmdastjóra.

Héraðsdómur féllst á þá lögskýringu. Við mat á því hvort heimilt væri að svipta Huginn ehf. rétti til takmörkunar ábyrgðar bæri því ekki að leggja háttsemi skipverja eða annarra starfsmanna til grundvallar heldur aðeins háttsemi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra félagsins.

Hafnaði því að sýnt hefði verið fram á stórfellt gáleysi 

Þegar þeirri niðurstöðu var náð tók dómurinn afstöðu til þess hvort forsvarsmenn Hugins ehf. hefðu sýnt af sér stórfellt gáleysi eða ásetning.

Vestmannaeyjabær og Ljósleiðarinn bentu meðal annars á að öryggishandbók hefði ekki verið innleidd með fullnægjandi hætti, að akkeriskeðja skipsins hefði ekki uppfyllt lögbundnar kröfur og að þessi atriði hefðu átt þátt í því að akkerið fór út og olli tjóninu. Þá var einnig byggt á því að uppsagnir skipstjóra og stýrimanns eftir atvikið bentu til þess að útgerðin sjálf hefði talið um alvarleg mistök að ræða.

Héraðsdómur féllst ekki á þessar málsástæður. Dómurinn taldi hvorki sannað að forsvarsmenn Hugins ehf. hefðu sýnt af sér stórfellt gáleysi né að fyrir lægi ásetningur eða þau orsakatengsl sem lög gera kröfu um til að svipta útgerðarmann rétti til að takmarka bótaábyrgð sína.

Af þeim sökum var viðurkennt að Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. gætu byggt á takmörkunarákvæðum siglingalaga og voru félögin, ásamt Vinnslustöðinni hf., sýknuð af kröfum stefnenda.

Málskostnaður var felldur niður sem þýðir að hvor aðili ber sinn kostnað sjálfur. Málinu kann þó að vera ólokið. Fyrir liggur að Vestmannaeyjabær og Ljósleiðarinn þurfa nú að taka ákvörðun um hvort niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands verði áfrýjað. Fram kom í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ í gær að verið væri að fara yfir forsendur dómsins. Frestur til að taka ákvörðun um áfrýjun er fjórar vikur. Mun Vestmannaeyjabær ekki tjá sig frekar um niðurstöðu dómsins að svo stöddu.

Nýjustu fréttir

Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
ÍBV vann Val í Goslokaleik
Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð
Goslok: dagskrá sunnudags
Goslokahátíð stendur undir nafni sem fjölskydluhátíð
Fjölbreytt mannlíf á öðrum degi Goslokahátíðar
Forsendur dómsins verða yfirfarnar
Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.