Vestmannaeyjabær vill vekja athygli á villu sem var í útreikningum ASÍ vegna hækkana á gjaldskrám leikskóla.
ASÍ hefur gefið út að hækkun á leikskólagjöldum hjá Vestmannaeyjabæ vegna 8 tíma vistunar með fæði hafi verið 14,6% á ársgrundvelli. �?etta eru rangar upplýsingar. Ef skjal ASÍ er skoðað betur kemur í ljós að allar forsendur eru réttar en samt er reiknað vitlaust. �?ar er sagt að gjald fyrir 8 tíma vistun m/fæði hafi farið úr 29.829 kr í 34.189 kr sem gerir 14,6% hækkun. Hið rétta er að gjaldið fór úr 31.213 kr í 34.189 kr sem er 9,53% hækkun. Gjöld Vestmannaeyjabæjar hafa fylgt vísitölu. Leikskólagjöldin hækkuðu umfram vísitölu á síðasta ári vegna óska foreldra um bætt fæði og aukna hollustu. Voru foreldrar tilbúnir til að taka á sig hluta kostnaðaraukann sem því fylgdi. Við það hækkaði fæðisgjaldið umfram vísitölu en almenna dvalargjaldið fylgdi vísitöluhækkun.
Árið 2004 var hlutdeild foreldra í rekstrarkostnaði leikskóla um 32% en fór í um 20% árið 2013. Á meðan meðaltalsvísitala neysluverðs hefur hækkað um 76% frá árinu 2004 hefur hlutdeild foreldra í þjónustutekjum hækkað um 45%. Hlutdeild Vestmannaeyjabæjar á sama tímabili hefur aftur á móti hækkað um 164%.
Vestmannaeyjabær harmar þessi mistök hjá ASÍ og hvetur til vandaðra vinnubragða við útreikninga sem þessa. �?ar sem ASÍ vekur máls á tengslum kjaramála og verðhækkana vill Vestmannaeyjabær vekja athygli á því að sveitarfélagið hækkaði laun allra fastráðinna starfsmanna undir launaflokki 120. �?etta var einhliða ákvörðun Vestmannaeyjabæjar að hækka lægstu laun umfram það sem ASÍ og önnur launþegasamtök höfðu samið um fyrir þeirra hönd.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.