Vestmannaeyjahöfn þarf að stækka

Vestmannaeyjahöfn þarf að stækka.  Hún þarf að geta tekið á móti stærri skipum og þjónustað þau með upplandi og viðeigandi innrigerð.  Án stækkunar er hætt við að í nánustu framtíð verði staða hafnarinnar erfiðari en nú er.  Þau áhrif munu teygja áhrif sín yfir til okkar öflu fyrirtækja og samfélagsins alls.

Vestmannaeyjahöfn er ein helsta verstöð hér á landi.  Hún gegnir lykilstöðu í þjónustu fiskiskipaflotans allt árið um kring.  Á seinustu árum hefur verið fjárfest fyrir gríðalegar fjárhæðir í vinnslufyrirtækjum og ljóst er að sóknarhugur útgerðarfyrirtækja er mikill.  Ólíkt því sem víða hefur gerst hafa sjávarútvegsfyrirtækin í Vestmannaeyjum verið að styrkjast og geta þeirra til frekari vaxtar í nánustu framtíð er mikil.  Þessi sterka staða verður þó ekki nýtt nema höfnin sjálf þróist með.

Höfnin okkar hefur þó víðtækara hlutverk en eingöngu að þjónusta fiskiskipaflotann.  Hún er lífæð samfélagsins vegna hlutverks síns í samgöngum.  Þá hefur staða hennar þegar kemur að móttöku skemmtiferðaskipa verið að aukast hratt á seinustu árum.

Veruleikinn er sá að Vestmannaeyjahöfn nálgast krossgötur.  Flutningaskip eru að stækka og verði ekkert að gert má sjá ákveðnar líkur til þess að höfnin hér dragist aftur úr. Þetta verður samfélagið í Vestmannaeyjum að horfast í augu við og vinna útfrá.

Árangur í þessu verkefni kemur ekki af sjálfu sér. Það þarf þrek, þor og þekkingu á þörfum hafnsækinna fyrirtækja í þessari baráttu.  Það ásamt sterkri framtíðarsýn mun ryðja braut til frekari vaxtar.  Um allt land keppast hafnir nú við að aðlaga sig að breyttum veruleika og Vestmannaeyjar þurfa að taka þátt í því kapphlaupi.

Ég bið um stuðning Eyjamanna í komandi prófkjöri Sjálfstæðismanna og þar með um umboð til að berjast fyrir verkefnum sem þessu.

Jarl Sigurgeirsson frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.