Viðbygging frystigeymslu VSV rís
Hafist var handa nú í byrjun vikunnar við að reisa stálgrind fyrir nýjan klefa frystigeymslu Vinnslustöðvarinnar á Eiði. Pólskt fyrirtæki framleiðir húsið og reisir það.
Gólfflötur frystigeymslunnar nær þrefaldast með viðbyggingunni. Núverandi frystiklefi er tæplega 2.000 fermetrar og þjónusturýmið er liðlega 300 fermetrar. Nýbyggingin verður tvískipt á alls 3.800 fermetrum.
Lofthæð er 7,5 metrar í núverandi húsi en verður 10 metrar í nýja hlutanum.
Í nýbyggingunni verður mótordrifið kerfi hreyfanlegra rekka sem stuðlar að betri nýtingu geymslurýmisins og gerir mun auðveldara og aðgengilegra en ella að setja frystivörur í klefana og taka úr þeim aftur.
Aðalverktaki við stækkun frystigeymslunnar er Eykt, sá hinn sami og annaðist framkvæmdir við nýja uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar.
Pólskur undirverktaki reisir stálgrindahúsið, Yabimo frá borginni Tarmow í suðausturhluta Póllands. �?etta er stórt og mikið iðnfyrirtæki sem reisir stálmannvirki af ýmsu tagi og annars konar hús og mannvirki, svo sem brýr.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.