Vilja láta vinna víðtækara áhrifamat
DSC_7648
Á sjónum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Samtök sjávarútvegssveitarfélaga ítreka afstöðu sína og hvatningu til Alþingis um að tekið sé tillit til þeirra athugasemda og þeirra áhyggja sem samtökin hafa komið á fram færi við atvinnuvegaráðherra, forsætisráðherra, fjármálaráðherra, atvinnuveganefnd og þingmenn. Samtökin hvetja þessa aðila til þess að hafa hagsmuni almennings í þessum sveitarfélögum til hliðsjónar þegar unnið er að breytingum á löggjöfinni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.

Þar segir jafnframt að það sé allra hagur að gögn og greiningar til að undirbyggja mat á áhrifum frumvarpsins á afkomu fyrirtækja og sveitarfélög landsins séu aðgengileg og að vandað sé til allra verka.

„Ekki aðeins er um að ræða hækkun á stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins heldur er ljóst að hækkunin nær til hundruða annarra fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi, einyrkja sem lítilla fjölskyldufyrirtækja. Verulegar líkur eru á að hækkun veiðigjalds leiði til aukinnar samþjöppunar fyrirtækja í sjávarútvegi og að starfsemi fiskvinnsla leggist af í ákveðnum byggðarlögum. Nauðsynlegt að áhrifamat sé gert svo að hagaðilar eins og sveitarfélög landsins, sem mörg hver byggja afkomu sína að verulegu leyti á íslenskum sjávarútvegi, geti metið bein og óbein áhrif frumvarpsins, s.s. á útsvarstekjur, tekjur vegna umsvifa í starfsemi hafna, stoðgreinar og nýsköpun.

Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir ánægju sinni með að atvinnuveganefnd Alþingis hafi unnið að jákvæðum breytingum á frumvarpinu sem varða hækkun svokallaðs frítekjumarks en ljóst er að vinna þarf málið betur á grundvelli nýrra gagna, uppfæra greiningar og vinna víðtækara áhrifamat, m.a. fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög landsins í samræmi við sveitarstjórnarlög. Við blasir að nauðsynlegt er bæta úr þeim annmörkum sem í ljós hafa komið m.a. varðandi gjald á ákveðnar tegundir. Samtökin lýsa enn yfir vilja sínum til að hækkun veiðileyfagjalda verði innleidd í þrepum,” segir í yfirlýsingunni.

Nýjustu fréttir

Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Gabríel Ari gerir tveggja ára samning við ÍBV
Skora á stjórnvöld að eiga jákvætt samtal við ferðaþjónustuna
Fallið frá kröfu um að minnka rampinn
Stór og spennandi tímamót hjá yngstu nemendunum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.