Vilja sömu laun fyrir sambærilega vinnu
Jónas Garðarsson hjá Sjómannafélagi Íslands, segir að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, hafi ekki heilsað sér á samningafundi á föstudag. �??�?eir voru ekki brosmildir þegar þeir mættu á fundinn og heilsuðu mér ekki,�?? sagði Jónas í samtali við Eyjafréttir.
Margir hafa velt fyrir sér kröfum undirmanna á Herjólfi um launaleiðréttingu upp á 43% og telja þær ansi miklar. Jónas segir eðlilega skýringu á þessu. �??Við erum einfaldlega að fara fram á launaleiðréttingu samkvæmt samningi sambærilegra starfsmanna sem vinna t.d. hjá Eimskip. Okkar umbjóðendur á Herjólfi voru hjá öðru stéttarfélagi síðast þegar samið var og því miður fengu þeir ekki sambærileg launakjör. Við viljum einfaldlega leiðrétta þennan mun,�?? sagði Jónas og bætti því við að kröfur Sjómannafélags Íslands væri í fjórum liðum.
�??Í fyrsta lagi viljum við að okkar félagar fái sömu kjör og farmenn fengu í sínum samningum 2011. Í öðru lagi viljum við að okkar félagar á Herjólfi fái sama yfirvinnuálag og er í sambærilegum störfum á öðrum skipum. Yfirvinnuálag annarsstaðar er 80% en aðeins 33% á Herjólfi. Í þriðja lagi viljum við að sjómannaafslátturinn sé greiddur eins og allsstaðar annarsstaðar, þ.e. eins og hann var fyrir skerðingu. Og í fjórða lagi viljum við að hásetar á bíladekki fái greitt fyrir aukna vinnu við losun og lestun gámavagna. Um leið og hásetum var fækkað um borð úr fjórum í þrjá, var þessari aukavinnu skellt á þá háseta sem eftir voru, án þess að þeir fengu greitt sérstaklega fyrir það. Semsagt, vinnuálagið var aukið með fækkun og aukastörfum bætt á háseta. �?etta eru þær kröfur sem við setjum fram og teljum réttlátar,�?? sagði Jónas.
Fundur deiluaðila er að hefjast núna klukkan 11:30.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.