�??�?g óska að fleiri gætu tekið mér eins og ég er�??
Jóhanna Ýr Jónsdóttir á 10 ára einhverfan dreng og gerði hún myndband til þess að útskýra fyrir fólki hvað röskun á einhverfurófi er. Jóhanna sem er þriggja barna móðir í Vestmannaeyjum segist hafa búið til myndbandið því það séu svo margir sem viti ekki mikið um einhverfu. Myndbandið gerði hún fyrir styrktartónleika Einhugs, félags foreldra í Vestmannaeyjum sem eiga börn á einhverfurófi. Sif Hjaltdal Pálsdóttir teiknaði myndirnar fyrir Jóhönnu og ætla þær vinkonurnar einnig að þýða söguna yfir á ensku svo fleiri geti horft á það.
�??Boðskapurinn er umburðalyndi, að taka fólki eins og það er,�?? segir Jóhanna en hún er ótrúlega ánægð með viðbrögðin sem myndbandið hefur fengið.
�??�?g er pínu meir yfir þessu. �?g hef fengið skilaboð frá mörgum foreldrum,�?? segir Jóhanna og vonar hún að myndbandið hjálpi sem flestum.
�??�?g var fyrst hrædd um að það væri of barnalegt og einfalt en það verður bara að vera þannig, svo skilaboðin skiljist sem best,�?? segir Jóhanna. Myndbandið er byggt á sögunni sem hún sagði syni sínum, Gísla Hrafni og yngri dóttur sinni, Sigrúnu Ýr til þess að útskýra einhverfu betur fyrir þeim. Systkinin eru bestu vinir og átti Sigrún Ýr líka þátt í að skapa söguna:
�??�?egar ég bjó til samlíkinguna um vegi sem verða að götum greip hún það á lofti og sagði: Já, einu sinni kunni ég ekki að teikna en ég æfði mig og núna er vegurinn minn orðinn að malbikaðri götu með ljósastaurum og allt,�?? segir Jóhanna.

�??Sonur minn á svo auðvelt með að tala um þetta. Hann var áður með innbirgða reiði en við þjálfuðum okkur í að ræða um tilfinningar okkar. Hann á því mjög auðvelt með þetta í dag,�?? segir Jóhanna.

Jóhanna bað um leyfi hjá syni sínum áður en hún gerði myndbandið um söguna hans og tók hann vel í þessa hugmynd. Sagði hann þá strax við móður sína: �??Ef að þú getur hjálpað einhverjum öðrum þá er það frábært.�??

Jóhanna fékk frábært símtal í gær frá einum föður sem sagði henni að sonur sinn hafi byrjað að ræða einhverfu sína eftir að hafa séð myndbandið. Hann hafði alltaf átt erfitt með að tjá sig um þessi mál áður. �??�?etta hafði mjög sterk áhrif á hann,�?? sagði Jóhanna en Gísli Hrafn var alveg í skýjunum þegar hann heyrði að sagan væri að hjálpa öðrum börnum. �??Hann er mjög stoltur,�?? segir Jóhanna að lokum.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.