Hvernig náði meistaraflokkur karla ÍBV í handbolta að vinna fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn?
Í viðtölum við þjálfara og leikmenn kom oftar en ekki fram að liðsheildin hafi landað þessum titli. Hver er þá liðsheildin? Jú, liðsheildin samanstendur af þjálfarateymi, leikmönnum, ekki bara spilandi leikmönnum heldur öllum þeim sem eru í hópnum og æfingahópnum. Fjölskyldur þjálfarateymis og leikmanna skipa stóran sess líka. Handknattleiksdeildin og allir sjálfboðaliðarnir sem sjá um umgjörðina í kringum leikina og leikmannahópinn. Bæjarbúar og aðrir áhorfendur liðsins sem mæta á leikina og þeir sem mæta ekki á leikina en fylgjast samt með, sýna áhuga, hvetja og hrósa.
Nú eru sjálfsagt einhverjir ævareiðir yfir því að ég hef enn ekki nefnt Hvítu riddarana því margir ef ekki allir trúa því að stuðningur þeirra hafi verði ómissandi. �?eir voru hvetjandi allan tímann, líka þegar liðið var undir í leikjunum, leikmenn algerlega búnir á líkama og sál, svekktir og næstum, já næstum búnir að missa vonina. Á því augnabliki heyrðu þeir í Hvítu riddurunum, litu upp og sáu vonina í augum þeirra, fundu fyrir hvatningunni og fylltust um leið eldmóð og styrk til að halda áfram og klára leikinn og gengu stoltir frá lokaleiknum með nafnbótina �??Íslandsmeistari�?? sem er kannski ekki aðalmálið heldur það að þeir fundu í hjarta sínu að þeir gerðu sitt besta.
Í haust eru samræmd próf í 4., 7. og 10. bekk. Hvernig væri að við, samfélagið í Vestmannaeyjum, tækjum Íslandsmeistarann á þau? Höfum umgjörðina þannig að við getum öll fundið í hjarta okkar að við gerðum okkar besta. Liðsheildin í skólasamfélaginu og þá í samræmdum prófum eru þá fyrst og fremst foreldrarnir og kennarateymið sem taka að sér hlutverk þjálfarateymisins. �?að er þeirra að setja upp gott leikskipulag og það er þeirra að sjá til þess að allir mæti vel undirbúnir til leiks. Allt starfsfólk skólans, skólaskrifstofa og samfélagið okkar í heild eru þeir sem taka að sér önnur hlutverk t.d. hlutverk Hvítu riddaranna, með því að sýna stuðning og hvetja nemendur áfram, fylla þá eldmóð. Nemendurnir okkar eru auðvitað leikmennirnir og við viljum að þeir gangi sáttir frá leiknum, sáttir við sjálfa sig og samfélag sitt. Við viljum að þeir gangi stoltir frá leiknum og viti í hjarta sínu að þeir hafi gert sitt besta.
Undirbúningstímabilið er löngu byrjað og við megum ekki sofna á verðinum þrátt fyrir að nemendur okkar séu komnir í sumarfrí. Hvetjum þá áfram, sýnum þeim áhuga og látum þá vita að við höfum trú á þeim. Spyrjum þá ályktunarspurninga, bendum þeim á skrítin orð, vekjum athygli þeirra á lesefni hvort sem það eru blaðagreinar, bækur eða greinar á vefnum. Segjum t.d. �??jáhá�?? �??í alvöru�?? og �??hahahaha�?? þegar við lesum eða rekumst á eitthvað sem gæti vakið áhuga þeirra og þeir spyrja á endanum: �??Hvað ertu að lesa?�?? �??má ég sjá?�?? eða �??hvað sástu?�?? Verum vakandi í haust og munum að láta þá vita að við trúum því að þeir ætli að gera sitt allra besta. Hjálpumst að, höldum umræðunni gangandi á jákvæðu nótunum og gerum okkar allra besta, myndum liðsheild- samfélagsliðsheild um skólamál sem er nauðsynleg til að ná árangri, finnum það í hjarta okkar að lokum að við, samfélagið Vestmannaeyjar gerði sitt allra besta.
Ásdís Steinunn Tómasdóttir